Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 16
16
ATVINfiUVEGIB.
sýningarinnar voru Eggert Gunnarsson, Eggert Laxdal og Jón
Ólafsson á Eefkelsstöðum. Sýningin var byrjuð kl. 12 með
söngum og ræðuhöldum, en síðan var gengið til skoðunar á
sýningarmunum. Þar var um 150 sauðfjár og nokkuð af hross-
um. Sömuleiðis kom á sýninguna ýmiskonar vefnaður, hann-
yrðir, smjör, ostar, prjónles, smíðisgripir o. li. Til þess að
skoða fjeð og munina voru kosnar nefndir manna, og var körl-
um falið á hendur að skoða Ije, hesta og smíðisgripi, en kon-
um tóvinnu og matartegundir. Fengu nokkrir verðlaun, en
hjer er eigi rúm til þess að telja þá eða verðlaunamunina.
Yjer viljum að eins nefna vjel eina, sem Magnús gullsmiður
Benjamínsson á Akureyri hafði smíðað; sú vjel beygir og
klippir kambavír, stingur göt á skinnið undir vírinn, stingur
tönnunum í, og skilar síðan kambaskinninu fullgjörðu. Fyrir
vjel þessa fjekk hann 10 kr. verðlaun. Á sýning þessari fór
allt vel og skipulega fram, og þótti þar hin bezta skemtun að
vera. Yar alltaf öðru hverju skemt með ræðuhöldum, kapp-
reiðum og sönglist. IJess má geta, að þar voru engar vín-
veitingar hafðar, og enginn var þar ölvaður.
Önnur sýning var haldin á Reynistað í Skagafirði 29.
dag maímánaðar, og var þá og veður hið fegursta. Til þeirrar
sýningar hafði landshöfðingi veitt 200 krónur úr landssjóði til
verðlauna og annara nauðsynja. Til forstöðu sýningunni hafði
sýslunefndin kosið sýslufulltrúa Gnnnlaug Briem á Reynistað.
J>ar var tilhögun svipuð og á eyfirzku sýningunni, verðlauna-
útbýting, ræðuhöld, söngur, kapppreiðir, og auk þess glímur.
Á þessa sýningu var og komið með nautgripi. Einn hlutur
kom þangað, er vakti allmikla athygli manna, það var eins
konar strokkur, sem hafa átti til þess að breyta sauðatólg í
mjúka feiti, er líkist smjöri. Á þessari samkomu var fjöldi
manna, og var honni eigi slitið fyr, en um miðnætti með
dansi og samsöng. Báðar þessar sýningar fóru að mestu leyti
fram undir beru lopti, að því fráteknu, að sýningarmunir voru
sýndir í tjöldum, er þar til voru gjör. Á sýningunni á Eeyni-
stað var og umgirt svæði í kring um sýningartjaldið með
stöngum og strengjum; merkisblæjur blöktu á stöngum, og ís-
lenzki fálkinn þar á meðal dreginn í bláan dúk. Fessar sýn-