Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 47
LANDSSTJÓRN.
47
dalsheiði, Vatnsskarði, Siglufjarðarskarði, Bröttubrekku, Hellis-
heiði, og víðar, Alls var lagt af landssjóði þetta ár 20000 kr.
til fjallvega, og er það allmikið fje, en nægir þó ei til þess er
þyrfti.
Fje þessu var skipt þannig niður:
1, til Hellisheiðar . . . . 8323 kr. 54 a.
2, — Kaldadalsvegarins .,...., . 2000 — » -
3, — Holtavörðuheiðar . 5289 — 5 -
4. — Bröttubrekku , 500 — » -
5, — Haukadalsheiðar . 400 — » -
6, — Laxárdalsheiðar I O o
?; — Vatnskarðs og Siglufjarðarskarðs . 1905— 16-
8, — Öxnadalsheiðar . 1182— 25-
Amtsráðið í norður - og austurumdæminu lagði og til, að
veitt væri af sýsluvegasjóði 300 kr. til þess að leggja brú á
Eyvindará í Suður-Múlasýslu. IJá var og af ráðið að leggja brú
á Kolbeinsdalsá (Kolku) í Skagafjarðarsýslu. Um brúargjörð á
Skjálfandafljóti liefir verið áður talað. Sömuleiðis var og hald-
ið áfram að tala um brýrnar á í*jórsá og Ölfusá, enn ei meira,
því að mönnum rís hugur við kostnaði þeim, er þær hafa í för
með sjer; var því svo frestað að gjöra frekara út um það til
næsta þings.
Kosningar til ajþingis fóru fram víðast hvar í
septembermánuði, og var mikið í munni manna með að láta
þær nú fara sem bezt, þó að menn þættust eigi allskostar á-
nægðir með þær eptir á; upptalning þingmanna setjum vjer hjer
ei, en geymum hana til þingsögunnar í frjettum frá næsta ári.
Mikið var rætt um ólöglegar kosningar í blöðunum, en þó var
þeim ei kippt upp nema í Árnessýslu; þar höfðu orðið fyrir
kosningum Valdemar prestur Briem og Magnús biskupsritari
Andrjesson. Par var ei endurkosið fyr en vorið 1881. Sömu-
leiðis fóru kosningar í Norður-Múlasýslu ei fram fyr en með
vorinu. Hveruig kosningar hafi fallið, ber ei að dæma og verð
ur ei dæmt fyr en þinggjörðir dæma það sjálfar.
Prestastefna var að venju haldin 5. dag júlímánað-
ar og næstu daga; mættu þar alls 14 prestar. Hið helzta, sem
kom þar til umræðu, var hið sama og fyr, um að auka vald