Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 24
24
MENNTUN.
að umsjónarmannsembættið var lagt niður og tóku liinir nýju
kennarar að sjer þann hlutann, er lýtur að umsjón með piltum,
en Halklóri yfirkennara Friðrikssyni var íalin umsjón tneð munum
skólans og landfógeta fjárhagsstjórn hans. —Um vorið útskrifuð-
ust 9 piltar Lárus Eysteinsson, Skúli Thóroddsen og Óiafur Fin-
sen, allir með fyrstu einkunn, Jón Magnússon, Sigurður Stef-
ánsson, Níels Lambertsen, Bertel Þorleifsson og Halldór Egilsson,
allir með annari einkunn, og Helgi Árnason með þriðju ein-
kunn. Um vorið og haustið bættust við 24 nýir, svo að piltar
voru 107 við byrjun skólaársins, en skömmu siðar andaðist
einn þeirra, og voru þá eptir 100, sem voru í skóla velurinn
1879-1880.
Oagnfr æðaskólinn á Möðruvöllum var ei svo
undirhúinn, að kennsla gæti orðið hyrjuð þar að svo stöddu
þctta haust, þar eð þingið hafði gjört nokkrar hreytingar á
hinu upphaflega fyrirhugaða fyrirkomulagi hans.
Kvennaskólarnir í Keykjavík og á Laugalandi hjeldu
áfram starfsemi sinni sem áður. Á kvennaskólann í Reykjavík
gengu 23 stulkur alls veturinn 1879-80, en G af þeim tóku
samt ei þátt í allri kennslu. Sama veturinn voru 20 stúlkur á
kvennaskóla Eyfiiðinga. Hinar sömu konur höfðu forstöðu þess-
ara skóla og áður. Kvcnnaskódi Skagfirðinga var haldinn á
Hjaltastöðum, og hafði ungfrú Elín Briom kennslu þar á hendi.
Par nutu alls 11 stúlkur uppfræðingar Um haustið var kom-
ið upp kvennaskóla í Húnavatnssýslu, og tókst Hjörleifur prest-
ur Einarsson og Guðlaug Eyjólfsdóttir kona hans áhendurfor-
stöðu hans.
Barnaskólar voru, eins og vanalegt er, í helztu
kaupstöðum tandsins, og auk þess liingað og þangað víðar, ein-
kum í veiðistöðunum syðra, t. d. á Vatnsleysuströnd, Mýrar-
húsum, Akranesi, Leirá og víðar. Er hjer ei rúm til að skýra
nákvæmar frá þeim.
Prentsmiðjurnar voru þotta ár hinar sömu og að
undanförnu: þó hefir allmikil framför orðið á þeim, og er *það því
að þakka, að Sigmundur Guðmundsson, prentari í ísafoldarprent-
smiðju sigldi til Englands um vorið, og útvegaði sjer þar h r a ð-
p r e s s u, og hefir hún síðan veiið not.uð þar, og gengur síðan