Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 64
64
METÍNTUN.
að meðtöldu sumrinu á milli. Skólaárið nær frá 1. október til
30. september ár hvert, og skiptist skóKnn eptir tímanum í
vetrarskóla og sumarskóla. Vetrarskólinn nær frá 1. október
til 1. maí næsta vor, og skulu þá allar námsgreinir kenndar.
Sumarskólinn byrjar í miðjum' maí og nær fram í miðjan sept-
ember, og skal þá einkum kenna verklega búfræði og þær bók-
legar vísindagreinir, er við hana styðjast. Skal þá búfræðingi
heimilt að nota pilta til þúfnasljettunar, vatnsveitinga og ann-
ara jarðabóta og heyvinnu, og fá piltar hælilega þóknun fyrir
það eptir samningi við búfræðinginn. Námsgreinir við skólann
eru þessar: íslenzka, danska, enska, nýja sagan, einkum saga
Norðurlanda, ágrip af landfræði, eðlisfræði, einkum aflfræði,
efnafræði, steinfræði, einfaldur reikningur, uppdráttarlist og bók-
leg og verkleg búfræði. Próf skal haldið í greinum þessum í
byrjun maímánaðar ár hvert, og skal prófiá vera bæði munn-
legt og skriflegt í íslenzku og reikningi; þeim piltum, sem taka
próf síðara árið, skal gefið burtfararvottorð; úr vitnisburðunum
fyrir hinar 9 námsgreinir skal gjöra aðalvitnisburð, og skulu
68 stig vera ágætiseinkunn, 55 stig fyrsta einkunn, 29 stig
önnur einkunn og 9 stig þriðja eiukunn; sá, sem minna fær,
telst eigi að hafa staðizt prófið. Glímur, dans og aðra fim-
leika skal kenna 4 stundir á viku hverri. Að því er snertir
aðra stjórn skóians, eru ákvarðanir reglugjörðarinnar líkar
og er skipað í reglugjörð lærða skólans í Reykjavík. Það er
einkennilegt við reglugjörð þessa, sem annars þótti að mörgu
leyti góð, að í sögu á eigi að kenna annað en nýju söguna, og
það nákvæmast um Norðurlönd, eins og þungamiðja sögunnar
sje þar í nýju sögunni, og annað það, að sögu íslands skuli
alveg sleppt. Skólinn var settur 1. dag októbermánaðar, og
voru þá skólapiltar 33; höfðu nokkrir fleiri sótt um skólann
en fengu eigi sakir rúmleysis. Hafði að eins 25 verið ætluð
vist í skólanum, en hinir voru hafðir þar sem óreglulegir.
Vonir manna með skóla þennan eru hinar beztu, og er vonandi,
að þær láti sjer eigi til skammar verða.
þ>etta ár var og annar skóli stofnaður af nýju; það var
búnaðarskólinn f Ólafsdal. fess var getið í frjettunum frá
fyrra ári, að Torfi jarðyrkjumaður Bjarnason í Ólafsdal fjekk