Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 15
ATVINNUVEGIIt.
15
þar og mildu til kostað. Annars virðist, að áhugi sje að vakna
meðal almennings á því, að reyna að bæta búnaðinn, og liefir
það einkum sjezt í því, að margir eru teknir að sljetta þúfur
í túnum sínum; það er að sönnu lítið í stað, enn úr því að
það er byrjað, þá er heldur góðs að vænta; menn í'ara þá að
sjá árangurinn af fyrirhöfninni, þegar graslausar brunaþúfur eru
orðnar að sljettri flöt vafinni í góðu grasi. Búfræðingar ferðuðust
um, til þess að leiðbeina mönnum í jarðyrkju, vatnsveitingum
og hverju því, er mátti til framfara lúta. Sveinn búfræðingur
Sveinsson var nyrðra í Eyjaíirði og I'ingeyjarsvslum, og sagði
fyrir það er liann komst til; síðan fór hann utan um haustið,
og var þá gjört ráð fyrir af landsstjórninni, að hann kynnti sjer
aðferð Dana á Jótlandi að hepta fiugsandana þar, og reyna
síðan með sömu ráðum að vinna bug á flugsöndunum í Skapta-
fellssýslum, sem gjöra þar svo mikið tjón. Ymsir búfræðingar
hafa og starfað og leiðbeint, t. d. á Austfjörðum, í Húnavatns-
sýslu og víðar. Til orða kom og, að Torfi jarðyrkjumaður
Bjarnason í Olafsdal færi að koma upp búnaðar- eða jarðyrkju-
skóla, og var þegar nokkurt fje lagt til þess að búa hann undir.
Til framfara í innanbæjar búsumsýslu má geta þess, að ung-
frú Sigurbjörgu Friðriksdóttur frá Miklabæ í Oslandshlíð var
veittur 400 kr. styrkur til þess að fara utan til Danmerkur
og læra þar meðferð mjólkur, smjörgjörð, ostagjörð og aðra bús-
umsýslu, með því móti að hún tækist á hendur að kenna það
aptur.
A þessu ári fór að bera algjörlega áþví, að menn vildu með
fjelagsskap og samkomum reyna að styðja að framförum og dugn-
aði, einkum í búnaði, og láta dæmi dugnaðarmannanna, í hverju
sem er, koma fram á almennt sjónarsvið, og verða þannig að
hvöt fyrir hina, sem á eptir drægjust. A þessu bar nú þegar
hjá Norðlendingum, og það eigi að eins á einum stað, lieldur
og víðar. Vjor eigum við það, að þetta vor voru haldnar tvær
hjeraðssamkomur eða s ý n i n g a r nyrðra, önnur í Eyjaíirði,
en hin í Skagafirði. Sýningiu í Eyjaiirði var haldin á
Grund í miðri sveit 24. dag aprílmánaðar, á sumardaginn fyrsta.
Var veður hið fegursta, enda var þar saman kominn múgur
og margmenni; var það nálægt 500 manna. Forstöðumenn