Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 32
32
MENNTUN.
hjartna, hvar sem hann kom. Hann talaði vel íslenzka tungu,
og var nákunnugur íslenzkum bókmenntum bæði að fornu og
nýju. Hann unni íslandi og íslendingum af hjarta, og sagði
meðal annars, er hann skildi við landið: «Jeg veit, að jeg
á að skiljast við þetta sagnauðuga fræðiland, juir sem jeg hef
fundið svo marga góða vini 'og hef sjeð svo marga unaðsfagra
daga! Jeg skil nú orð höfundar Njálu, er hann lætur kapp-
ann ágæta segjn, er hann ætlar af landi burt, og vildi jeg feg-
inn, ef auðið væri, snúa aptur og segja með honum: «Hjer
vil jeg una æfi minnar daga, alla sem guð mjer sendir»! og þó
einstakur maður geti litlu áorkað, vil jeg þó vinna framvegis
fyrir ísland og frauifarir þess, ef guð gefur mjer líf og heilsu.
Sljer mun aldrei úr minni líða Island og íslands þjóð!» þessi
orð haus voru eigi tómt orðaskvaldur, því síðan hefir hann
sent bóksöfnum á íslandi mikið af dýrurn og merkum bókum
og mikið stutt að útbreiðslu rjettrar þekkingar á íslandi með-
al annara þjóða, því eins og kunnugt er hafa aðrar þjóðir allt
annað en glæsilegar hugmyndir um ísland og skrælingja þá, er
jieir lialda að þar búi.
Pess hefir áður verið gctið í frjettum frá Islandi, að Svíar
hjeldu 400 ára júbilhátíð háskóla síns í Uppsölum. þett.i ár
fóru Danir að þeirra dæmi, og hjeldu sömu júbilhátíð há-
skólans í Kaupmannahöfn í minningu þess, að hanu var sett-
ur á stofn ár 1479. Hátíðin átti að fara fram 4.—5. júní. Til
þeirrar liátíðar var boðið í brjefi til landshöfðiuga tveim stú-
deutum frá íslandi að koma og taka þátt í hátíðagleði Dana.
Til þeirrar farar kaus stúdentafjelagið í Keykjavík þáDavíð Schev-
ing á læknaskólanum og Olaf Olafsson, á prestaskólanum. Jón
Þorkelsson skólastjóri var og kosinn af landshöfðingja til farar
þessarar, en liann gat eigi komið því við. Hátíðin fór
fram með mesta sóma, og var afarmikið um dýrðir, en lijer
er eigi rúm til að segja gjör frá því, euda á það eigi við
stefuu þessa rits. Á hátíðinni fór fram doktora-krýning
(promotion), og voru þar doktoraðir tveir íslenzkir fræði-
menn: Vilhjálmur Finsen hæstarjettardómari (Dr. juris), og
skólastjóri Jón þorkelsson (Dr. philos.). tess verður og að
geta hjer, að Jón Þorkelsson var árið áður gjörður meðlimur