Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 46
46
LANDSSTJÓRN.
að haga þeim ferðum svo hið næsta ár. í’etta ár hjelt þó fje-
lagið öll heit sín, nema að því er farþegarúmin snerti, og
voru margir óánægðir, er kring um land fóru, hve lítið rúm
þeim væri ætlað, er væru á öðru rúmi, því að þeir neyddust til
að liggja úti á þilfari eða niðri í lestarrúmi í farangri og vörum,
og urðu þó að gjalda jafnmikið, og þó að þeir hefðu fengið rúm
inni í lyptingunni, þar eð þeim hafði verið selt farbrjef fyrir
rúmi, sem hvergi var til.
Áferðum landpóstanna hafa engar þær breyt-
iugar orðið, sem sjeu svo mikils varðandi, að því taki, að þess
sje getið hjer. fó má geta þess, að amtsráðið í vesturamt-
inu ákvað að stofna eina aukapóslferð frá Stað í Hrútafirði til
Stykkishólms. pessi póstur á að taka brjef og seudingar, sem
ganga milli Norður-og Yesturlands, svo að eigi sje verið að
flytja þær suður í Beykjavík og koma þeirn þannig pósta í
milli. tess má geta, að á þessu árí voru tekin upp íslenzk
spjaldbrjef, til þess að skrifa með eitthvað lítið og almennt
með póstum. Spjaldbrjef þau, er ætluð eru til þess að fara milli
póststöðva á íslandi, kosta 5 aura, milli íslands og Danmerkur
8 aura, en þau, er ætluð eru til þess að fara milli póststöðva
á íslandi og annara landa en Danmerkur, 10 aura.
Vegabótum var haldið áfram ótrauðlega á þessu sumri,
og skal hjer að eins getið hinna helztu fjallvega, er að hefir
verið unnið og við lokið. Það er kunnugt, að um undanfariu
ár hafa menn verið að vinna að vegagjörðum yfir hálendi það
og heiðar, er ganga í útnorður af miðhálendi íslands og
greinir Norður-og Vesturland. Þar eru þrír fjallvegir, Gríms-
tungnaheiði, Holtavörðuheiðiog Kaldadalsvegur merkastur. í’etta
sumar var lokið vegagjörðum á Kaldadalsvegi og Holtavörðu-
heiði, svo að þeir vegir eru orðnir góðir yfirferðar. I'arf nú ei
hið illræmda klungur á Skúlaskeiði framar að verða neinum að
fótakefii, sízt fyrst um sinn. Vegurinn á Holtavörðuhciði er
að sínu leyti ei eins góður, enda er hann og tekinn að skemm-
ast, það er fyrst var gjört af lionum. Bætt var við veginn á
Grímstungnaheiði, en þar gengur ei svo fljótt, þar sem um
13 mílna langan veg er að gjöra, víðast livar hinn versta við-
fangs. Sömuleiðis var þá og lagt fje til vegagjörðar á Yxna-