Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 50
50
LANDSSTJÓKN.
prestaskólanum þessi brauð : Sigurður Jensson Flatey og Múla
í Barðastrandarprófastsdæmi, Olafur Ólafsson Selvogsþingin,
Kjartau Einarsson Húsvíkurprestakall i Suður-t’ingeyjarpró-
fastsdæmi, og Einar Vigfússon Hof og Miklabæ í Skagafjarð-
arprófastsdæmi. — 23. dag ágústmánaðar fjekk Stefán prestur
Sigfússon á Skinnastöðum Skútustaða- og Keykjablíðarsöfnuði
í í’ingeyjarsýslu, frá fardögum 1881. — 25. dag októbermán.
fjekk Markús prestur Gíslason á Blöndudalshólum Fjallaþingin:
Viðirhól og Möðrudal í þingeyjarsýslu, frá fardögum 1881. —
11. dag desembermánaðar fjekk Ólafur prestur Bjarnarson á Ríp
Hof og Spákonufell á Skagaströnd frá fardögum 1881. — Konung-
ur veitti tvö brauð 19. dag ágústmánaðar; Hólmar í Keyðaríirði
voru veittir Daníel prófasti Halldórssyni á Hrafnagili í Eyjaíirði
og Oddi á Rangárvöllum var veittur Matthíasi presti Jockum-
syni, ritstjóra Jpjóðólfs; þessi brauð voru bæði veitt fráfardög-
um 1881, og eptir hinum nýju prestakallalögum.
Tveir prestar fengu lausn frá embætti: Andrjes Hjalta-
son í Flatey 1. dag júlímánaðar og Jón prestur Eiríksson á
Stóra-Núpi í Árnessýslu 28. dag s. m.
Heiður smerki dannebrogsmanna fengu á
þessu ári: fyrrum hafnsögumaður Jón Bjarnason á Bíldscy í
Snæfellsnesssýslu 25. dag maímánaðar, Porleifur hreppstjóri
Jónsson á Stóru-Háeyri í Árnesssýslu og Hjalmar hreppstjóri
Hermannsson á Brekku í Suður-Múlasýslu, báðir 30. dag ágúst-
mánaðar. Sama dag var og Eggert Ó. Briem sýslumaður í
Skagafjarðarsýslu sæmdur riddarakrossi dannebrogsorðunnar.
Af styrktarsjóði Kristjáns konungs hins
níunda voru 30. dag septembermánaðar Erlendi Pálmasyni á
Tungunesi í Húnavatnssýslu og Jóni Bjarnarsyni á Austvaðsholti
í Rangárvallasýslu veittar 160 kr. hvorum.
Prestvígðir voru 22. dag ágústmánaðar 5 kandidatar ;
Árni torsteinsson til aðstoðarprests hjá Jóni presti Austmanu
á Saurbæ í Eyjaíirði, og Einar Vigfússon, Kjartan Einarsson,
Ólafur Ólafsson og Sigurður Jensson til brauða þeirra, er getið
er um hjer að ofan.