Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Page 35

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Page 35
MANNALÁT. 35 ist hann af brjóstveiki, sera að síðustu dró hann til bana. Hann var hinn vandaðasti piltur í öllu, livcrs manns hugljúfi, og stundaði vcl nám sitt. — 8. dag nóvembermánaðar andað- ist á sjúkrahúsinu í Keykjavík Ó 1 a f u r Ó. T h o r 1 a c í u s, hreppstjóri frá Dufansdal í Arnarfirði. Hann var atgjörvis- maður hinn mesti og vinsæll, og öllum mjög harmdauði; hann hafði slasazt af byssuskoti, er að síðustu dró liann til bana; liann var um fimmtugt. — 11. dag sama mánaðar varð Páll prestur Ingim u ndars on á Gaulverjabæ bráðkvaddur. Hann var fæddur á Egilsstöðum í Ölfusi 21. dag maímánaðar 1812. Hann ólst upp hjá foreldrum sínutn til 1824; en þá fluttist hann til móðurbróður síns, Jóns prests Árnasonar á Söndum í Dýrafirði, og kom hann honum í skóla. Hann úlskrifaðist 1836 og fór þá til Jakobs prófasts Árnasonar í Gaulverjabæ, og varð aðstoðarprestur hans 1839, og var settur varaprófastur í Árnessýslu 1840—1848. Hann var altaf aðstoðarprestur til dauða Jakobs prófasts 1855, og var síðan veittur Gaulverjabær eptir hann 31. júli 1856, og var þar síðan prestur til dauða- dags. Hanu kvæntist 1842, og gekk að eiga ungfrú Sigríði Eiríksdóttur Sverrisen; þau áttu saman mörg hörn, og lifðu 3 dætur föður sinn. Páll prestur var góður keunimaður og framúrskarandi ástundunarsamur og reglufastur í embætti sínu og hvers manns hugljúfi. II a n n e s Á r n a s o n, prestaskólakennari í líeykjavík, andaðist eptir langvinn veikindi 1. dag desémbermánaðar. Hann var fæddur' 11. dag októbermánaðar 1809, varð kandídat í guðfiæði frá háskólanum 1847, og vígðist þá prestur að Stað- arstað um vorið. Um sumaiið liætti hann við prestskap og varð þá þegar um haustið kennari í forspjallsvísindum við prestaskólann í Keykjavík; einnig hafði hann á hendi frá þeim tíina til 1876 kennslu við lærða skólann í dýra- og steinafræði. Hann kvæntist 1848 í Kaupmannahöfn Lovise G. C. A. Anthon; hún andaðist 1868. fcim varð eigi barna auðið. Hann var allra manna vinfastastur, og þóft hann virlist nokkuð undar- legur í fyrstu, ávann liann sjer clsku allra þeirra, er vildu þekkja hann. Hann var vel að sjor í heimspekilegum fræðum og las þau jafnan af mikilli ástunduii og unni þeim mjög. 3*

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.