Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 60
60
ÍRFERB OG ATVTNNUVEGTR.
virki má eflnust telja þinghúsið nýja. |>ingið 1879
veitti allt að 100,000 kr. til þess að reisa steinhús handa
alþingi og söfnum landsins, landsbókasafninu og forngripasafn-
inu. Þá er þessi ákvörðun var gjör, var þegar kosin nefnd
manna til þess að sjá um -bygginguna, og var F. Meldahl
arkitekt og forstöðumaður listaháskólans í Kaupmannahöfn
fenginn til þess að gjöra uppdráttu þá, er til hússins þyrftu.
Lengi voru menn í óvissu, hvar húsið skyldi standa, en að lok-
um komst nefndin á þá niðurstöðu ,að hafa það norðanvert við
bakarastiginn milli húsa þeirra Bergs amtmanns Thorbergs og
Jóns háyfirdómara Pjeturssonar. Var þar grafið fyrir grundvelli
hússins og tekið að leggja undirstöður. Lengd hússins var á-
kveðin 45 álnir en breidd 25 álnir. Við þetta var nú látið
sitja fyrst um sinn, en er voraði og til’átti að taka, af tók
Meldahl að láta húsið standa í slíkum halia, og bauð að færa
það til. Var svo gjört, og varð við það allur sá kostnaður, er
hafði orðið við grunngröptinn, til ónýtis. Nú vildu sumir láta
setja húsið á Arnarhóli, þar sem mest bæri á því, en sumir
annarstaðar; en niðurstaðan varð sú, að það var sett fyrir vest-
an kirkjuna, rjett að segja í beinni línu við liana; það var
sett 19 álnum fyrir vestan hana, og fáar álnir frá tjörninni; en
þó að laus væri jarðvegur undir, var það kastmöl, og þótti
mönnum, sem þar mundi öllu óhætt vera, að húsið sykki eigi
á kaf með tímanum. Yfirsmiður hússins hjet F. Bald, og voru
með honum margir danskir steinsmiðir og múrsmiðir auk ann-
ara; svo hafði og mesti sægur íslenzkra manna atvinnu við
hússgjörð þessa. Grundvöllur ramgjör var lagður undir allt
húsið, og er það var búið, var hann allur bræddur ofan sjóð-
andi jarðbiki (Asphalti), og gjörir það að verkum, að engin væta
getur læst sig upp eptir veggjunum að innan. Er það var allt
á enda, var ákveðinn 9. dagur júnímánaðar til þess að leggja
hyrningarstein hússins, og var það gjört með hinni mestu við-
liöfn. Á Austurvelli var reist tjald mikið, og voru í því til
sýnis uppdrættir Meldahls til hússins, og fannst mönnum mik-
ið um þá; yfir grunninum voru reistar háar stengur, og blöktu
á fánar, en á milli stanganna voru þanin stög alsett marglitum
veifum. Meðal þeirra fána voru og fálkamerki tvö. Á annari