Fréttir frá Íslandi - 01.01.1879, Blaðsíða 62
62
ÁHFERD OG ATVINNUVEGIR.
gjörðinni um sumarið, og var það komið undir þak um haustið,
en innansmíðar allar voru geymdar til vetrar.
Á þessu vori var og lokið smíðum á steinkirkju Görðum á
Álptanesi'; er hún einkar vönduð og ramgjör, og í alla staði hin
fegursta. Hún liafði kostað með öllu um 12000 krónur, og
þótti það lítið um jafn veglegt hús. Hana reisti Þórarinn
prófastur Böðvarsson, og hafði hann fengið til þess fyrirtækis
10,000 kr. lán úr landssjóði.
III. M e n n t u n.
Að því, er menntun landsmanna snertir almennt, hefir
allmargt gjörzt á ári þessu, sem vert er að nefna, einkum að
því er snertir skóla og skólastofnanir. Munum vjer fyrst geta
hinna eldri skóla, en síðan þeirra, er að nvju hafa við bætzt.
Heimspekispróf tóku í Reykjavík við prestaskólann
24. dag júnímánaðar: Jón Magnússon, Lárus Eysteinsson,
Magnús Helgason, Sigurður Stefánsson og Ólafur Ólafsson með
fyrstu ágætiseinkunn (hinn síðastnefndi tók það próf eigi 1879),
og Halldór Egilsson og Helgi Árnason með fyrstu einkunn.
Embættispróf af prestaskólanum tóku þetta
sumar sex stúdentar: Kjartan Einarsson, Eiríkur Gíslason, Hall-
dór Þorsteinsson og Ólafur Ólafsson, allir með fyrstu einkunn,
og Árni I>orsteinsson og J>orsteinn Halldórsson með annari ein-
kunn. í hinni ýngri deild prestaskólans voru þá 6 eptir, og
bættust við tveir stúdentar af latínuskólanum, svo að 8 stúdent-
ar heyrðu fyrirlestra á prestaskólanum veturinn 1880—1881.
Embættispróf af læknaskólanum tók einn
stúdent, Davíð Scheving Þorsteinsson, með hinum bezta vitnis-
burði; á þann skóla bættist aptur um haustið einn stúdent frá
lærða skólanum, svo að stúdentar á læknaskólanum voru jafn-
margir, nefnilega 6, eins og árið áður.
Af íslendingum við háskólann í Kaupmannahöfn tók Guðni
Guðmundsson embættispróf í læknisfræði með fyrrastigi 2. eink.
pess hefir verið áður getið í frjettunum fyrir árið 1877, að
ný reglugjörð hafði gefin verið fyrir hinn lærðaskóla í Reykja-