Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 62
62
hjer á landi á þeim tímum, er það var miklum erfið-
leikum bundið að afla sjer mjöls frá öðrum löndum.
þ>ar eð reglulegar gufuskipaferðir eru nú komnar á
milli íslands og annara landa, virðist eigi vera nokkur
ástæða til þess, að leggja sig mjög í líma fyrir það,
að gjöra byggyrkjuna almenna hjer á landi, þar eð
hún auðsjáanlega eigi mun geta borgað þá vinnu og
þau útgjöld, er hún hefur í för með sjer, og þar eð það
bygg, er yrkt er hjer á landi, ætið mun verða mjög
rýrt að gæðum, svo að það naumast mun að meðaltali
geta náð hálfri þeirri vigt á'hverri tunnu, sem almennt
gott útlent bygg hefur.
Aptur á móti gœti, ef til vill, verið ástæða til þess,
að reyna að yrkja bygg með öðru marki og miði en
því, að fá fullvaxið bygg. Jeg álít það æskilegt, að
hjer á íslandi væru gjörðar tilraunir svo nokkru næmi
og þeim haldið áfram í nokkur ár með einhverja korn-
tegund, sem yxi fljótt, með því marki og miði, að búa
til súrhey úr jurtunum, meðan þær eru grænar og
safamiklar. J>að mætti haga því svo, að til þess byggs,
sem sáð væri í þessum tilgangi, væri farið að sá svo
tímanlega, að þvi væri lokið skömmu áður en hey-
annir byrjuðu, svo að það eigi truflaði þetta starf, og
hjer um hil 7 til 8 vikum seinna, eða, ef til vill, litlu
fyr, mun mega slá gras þetta, sem þá er orðið hátt
og öflugt. J>að leiðir af sjálfu sjer, að þegar verið væri
að búa jörðina undir tilraunir þessar, yrðu menn að
beita plógi, og þannig smátt og smátt reyna að hafa
nokkur not við akuryrkjuna af þeim mikla vinnukrapti,
sem er hjer á landi, þar sem eru hinir fjölda mörgu
hestar, því eigi er auðvelt að hafa stöðuga vinnuhanda
þeim, eptir því sem nú stendur á. Ef farið væri að
gera tilraunir til þess að yrkja bygg í þeim tilgangi,
að hafa það í súrhey, og þá hittist á þá. staði hjer á
landi, þar sem það væri venju fremur óbrigðult að