Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 151
151
vér setjum á þá brennimark fjandskapar gegn alþýð-
unni. Af öllum fylgisflokkum eru þeir skaðsamlegast-
ir, sem hvíla á ólíkum félagsstéttum; en þeir eru í
engu landi jafn ástæðulausir, sem hjá oss.
Meðal hinna beztu manna, einkum hinna guð-
ræknari, eru til ýmsir menn, sem halda sér fjarri póli-
tiskum viðskiptum sökum viðbjóðs á ofsa og fláttskap
flokkanna. Eg hygg, að þeir gjöri órétt í þvi. Guð
hefur skapað þá félagsborgara og lagt á þeirra herð-
ar borgaraskyldur, og þeir hafa engu meiri rétt til að
skorast undan þeim en skyldum sona, eiginmanna
eða feðra. J>eir standa i stórskuld við land sitt, og
eiga hana að greiða með því að ‘fulltingja þeim, sem
þeir álíta beztu menn, eða bezt fyrirtæki. J>eir mega
ekki heldur segja, að þeir megni einkis. Hver góður
maður, sem er hollur og trúr sinni sannfæringu, gagn-
ar sinni fósturjörð. Ollum flokkum er haldið í skefj-
um af anda hinna betri manna, sem í flokk eru. Odd-
vitarnir neyðast ætíð til að spyrja, hvað flokkur þeirra
þoli, og lempa svo ráðagjörðir sfnar, að þeir styggi
ekki frá sér vönduðustu mennina. Góður maður, sem
ekki lofar þeim flokki, er hann fylgir, að teyma sig
hvert sem vill, heldur dæmir um hann hlutdráttar-
laust, finnur einarðlega að, vitnar í gegn göllum hans
og veitir aldrei fulltingi sitt hinu ranga, hann er nýt-
ur maður sínum nágrönnum, og menntar sjálfs sín sál
eins og göfugmenni sæmir.
Eg ræð þeim, sem eg tala við, með virðingu til
að taka þátt í pólitiskum málefnum föðurlandsins. þ>au
eiga að aga fólkið og vinna mikið að uppeldi þess.
Eg ræð yður til að leggja mikla stund á að ná glögg-
um skilningi á þeim málum, sem hreyfa sér í félaginu;
kynnið yður þessi mál í stað þess að eyða tómstund-
um yðar til ógreinilegra, æstra umræðna um þau. Sá
tími, sem þorri manna eyðir til dagdóma, mætti, ef