Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 97
97
sitt afgjald af vissum jörðum (rektors-umboði) og var
það reiknað á 66 rdl.
Undirkennarinn á Hólum, sem fyrst var kallaður
heyrari eða lokat og síðar konrektor, átti upphaflega
að hafa í árslaun 20 rdl. og kauplaust fæði. Síðar
var hann launaður jafnt og dómkirkjupresturinn. Á
Hólum voru jafnaðarlegast 20—25 æðri og lægri vinnu-
menn, auk prentara og kaupamanna, en að meðtöld-
um smiðum og smölum; en hjer er þess að gæta, að
stóllinn hafði tvö útibá, annað í Hofsstaðaseli og hitt
á Flugumýri, og á þessum útibúum var nokkuð af vinnu-
fólkinu lengri eða skemmri tíma af árinu. Auk þess var
haft í seli. Smiðirnir og æðstu vinnumennirnir, svo sem
yfirlestamennirnir, höfðu 6, 8, 10 ogjafnvel i2rdl. í kaup,
auk i2álna af vaðmáli handa hverjum, en vaðmálsalin
reiknuð á 10 sk. Sljettir og rjettir vinnumenn ogundir-
lestamenn höfðu 4 rdl. í kaup og 8 ál. vaðmáls. Yfir-
prentarinn var tiltölulega hálaunaður. Hann hafði 24
rdl. í kaup; tveir voru setjarar, annar með 12 rdl.
kaupi; hinn, óvaningur, með 4 rdl. Prentarinn eða
„þrykkjarinn“ hafði 8 rdl. kaup. Svo var og ljettadreng-
ur, sem 3 rdl. voru goldnir. Allir við prentverkið
nema yfirprentarinn höfðu þess utan 8 ál. vaðmáls.
Tveir bókbindarar höfðu sína 8 rdl. og 8 ál. vað-
máls hvor.
Vinnukonur og þjónustustúlkur voru frá 22 til 25
á Hólum, að ráðskonunum meðtöldum. Af því svo
margt var um að annast, og af því að haft var í seli,
voru stundum 4 og 5 ráðskonur, og höfðu 2 þær æðstu
4 rdl. og 4 ál. vaðmáls í kaup, en hinar 3 rdl. og 4
ál. vaðmáls. Hinar vinnukonurnar höfðu flestar 1 rdl.
30 sk. og 4 ál. vaðmáls í kaup. Kaupamennirnir voru
sjaldan fleiri en 8 og ekki færri en 4. J>eir höfðu
hver 8 rdl. í kaup.
Tímarit hins isl. Bókmenntafjelags. VII. 7