Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 72
72
um „Uppbæinn“. Eptir úttektunum að dæma hefur Hóla-
staður frá siðabótinni og fram á 18. öldina aukizt að
húsum, þótt fje stólsins þyrri á þvi tímabili, því að í
hinum síðari úttektum eru húsin talin heldur fleiri og er
það lika eðlilegt, að fleiri og meiri húsakynni hafi þurft,
þegar búið var að koma þar upp reglulegum skóla
og prentsmiðju. Hjer skulu nú talin bæjarhúsin á Hól-
um eptir þeirri röð, sem þau standa í í úttekt frá
1741, því það er fullkomnasta og greinilegasta úttektin
og siðan skal nokkrum þeirra lýst nákvæmar eptir
enn eldri úttektum, því vera má að mörgum þyki
fróðleikur i að vita, hvernig húsakynni biskupsins,
helzta manns landsins á þeim tímum, hafa verið, svo
og embættismannanna við skólann og stólinn.
Staðarhúsin sjálf eru talin:
1. Steinhúsið eða nýja húsið svo kallað, 6 stafgólf.
2. Timburstofan gamla.
3. Biskupsbaðstofan.
4. Barnabaðstofan.
5. Prestsbaðstofa.
6. Nýji skálinn svo kallaður, 2 */2 stafgólf.
7. Kjallari eða kjallarabaðstofa, 3 stafgólf.
8. Fatabúrið, 6 stafgólf.
9. Steikarahús nyrðra.
10. Steikarahús syðra.
11. Borðhús, 4 stafgólf.
12. Stórastofan, 6 stafgólf.
13. Stórabúr, 5 stafgólf.
14. Forbúr, 5 stafgólf.
15 Eldaskáli, 5 stafgólf.
ió. Litlabúr, 2 stafgólf.
17. Grasaloptið.
18. Langabúr, 9 stafgólf.
19. Suðurbæjargöng.