Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 81
81
vidtók alls og alls kug. XIII hnd. XLIIII. Af þessum
XIII hnd. XLIIII kúg. kortast nú XII kúg. uppí
þau XVI sem sá sálugi loflegi Hrra, Hrra
Gudbrandur Thorlaksson hafde af Stolsens inventario
giefid fyrer XX hnd. í Eivindastödum svo stólliw skillde
XX hnd* eignast eptir því, sem brief þar um gjört
útvijsar
Eiga stadnum ad filgia XIII hnd. XXXII kúg.
Hjer upp í afhendt heim á Hólum og selium kýr og
ær — LLVII og tvær ær.
Item á prestajördum XLIII kúg. Item í umbod-
um öllum XII hnd. II kúg. og I ær.
Og hefur þá stadnum verid afhendt XIII hnd.
XXXII kúg.“.
fað getur alls eigi verið svo að skilja, að þær
56 kýr, sem að framan eru nefndar, hafi allar verið
fóðraðar heima á Hólum; því bæði sýnir stærð fjóss-
ins, eins og að framan er tekið fram, að þetta hefur
ekki getað verið, og svo hefði það verið lítt mögulegt að
framfleyta yfir 50 kúm á Hólum sjálfum; því þó ekki
hefði hverri kú verið ætlaðir til vetrarins meir en 30
hestar af töðu, sem þó er allt of lítið, eptir því, sem
viðgengst á Norðurlandi, hefði þurft að heyja að fjós-
inu einu á Hólum yfir 1500 hesta af töðu, en það er
óhugsandi. Hjer eru auðsjáanlega taldar með lands-
skuldarkýr, sem stundum voru nytjaðar heima á sumr-
in, en drepnar eða hafðar í fóðrum á vetrum, og svo
eru kýrnar á útibúunum reiknaðar með, og vel líklegt,
að við afhendinguna hafi allt verið rekið heim. Af
því sumir virðast gjöra nokkuð mikið úr kúafjölda fyr
meir, skal jeg færa nokkur dæmi, sem sýnir kúafjöld-
ann á Hólum. Fyrst og fremst segir Sigurðarregistur
með berum orðum, að kýrnar hafi þá verið 13 heima
Tímarit hins islenzka Bókmenntafjelags. VII.
6