Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 95
95
þess að gæta, að hver rdl. er talinn á 90 sk.
1. af umboðunum . . . 2083 rdl. 39 —
2. tiundir.................... 114 — 88 —
3. af kirkjum, sem stólnum
tilheyrðu ................... 9 — 53 —
4. af rekum..................... 1 — 84 —
Hitt allt, eða mest allt, er tekjur af búskapnum
heima á Hólum og í seli og á útibúunum, af prent-
verkinu og fleiru. Staðurinn hafði jafnan menn við
sjó, svo sem suður við Faxafllóa, norður í Grlmsey og
jafnvel vestur undir Jökli. Afli útróðrarmanna er hið
ofannefndu ár talinn 68 rdl. 93 sk.; skyr 61 tunna, er
talið á 91 rdl. 45 sk.; 53 tunnur af sýru á 16 rdl. 15
sk.; 271 ijórðungur smjörs á 90 rdl. 45 sk.. Af ull-
arvinnu, prjónlesi m. fl. eru tekjur taldar 120 rdl. 52
sk.; þar á meðal 88 pör af mórauðum smábandssokk-
um parið á 60 sk., 22 pör af svörtum (bláum) smá-
bandssokkum, parið á 70 sk., 8 pör af hvítum á 30
sk., 278 ál. af vaðmáli á 10 sk. alinin o. s. frv. Af
fjenaði þeim, sem slátrað var heima á Hólum haustið
1742, er afurðin talin til inntektar með 71 rdl. 27 sk.
Fjenaður þessi var meðal annars: 8 gamalkýr, kjötið
af hverri reiknað á 1 rdl.; 5 naut, kjötið af hverju
reiknað á 2 rdl.; 53 mylkar ær, kjötið af hverri reikn-
að á 24 sk.; 10 geldar ær, kjötið af hverri reiknað á
45 sk ; enn fremur 9 veturgamlar gimbrar, 12 lömb
og 12 kálfar, kálfsskrokkurinn reiknaður á 12 sk.
Tekjur af vinnu fólksins eru allar nákvæmlega
sundurliðaðar. Af vinnu járnsmiðanna eru tekjur reikn-
aðar 10 rdl. 84 sk., og var það mest hestajárn, önglar
og knífar — alls eigi minnzt á ljái —; skaflaskeifu-
gangurinn er reiknaður á 30 sk.; en flatskeifugangurinn
á 12 sk.
Tekjur af prentsmiðjunni voru 267 rdl. 24 sk.; og
eru einkum taldar sálmabækur og Vídalínspostillur.