Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1886, Blaðsíða 64
64
Vicia.
Trifolium.
storm alveg þakin af skán úr saltkrystöll-
um, og að vatnið í regnmæli, sem stendur
hjer um bil 300 álnir frá sjó og milli hans
og sjávar mörg há hús, getur orðið
salt á bragðið og gruggað af talsverðum
sandi og skeljum, sem eru muldar i dust.
Enda þótt að bóghveiti yrði þannig eigi
fullþroskað hjer á landi sumarið 1883, geta
menn samt eigi ályktað af því, að það eigi
kynni að vera vel fallið til ræktunar á ýms-
um stöðum hjer, og æskilegt væri, að það
yrðu gjörðar fleiri tilraunir í þá átt.
Vikke (umfeðmingsgras).
Jeg hef gjört tilraunir við ýmsar teg-
undir af þessum jurtum; þær urðu allar vel
samferða; þeim var sáð 27. dag maímánað-
ar, komu upp 14. og 15. dag júnímánaðar,
urðu hjer um bil álnar háar, og blómstruðu
allar í lok júlímánaðar; en belgirnir urðu
að eins rúmur þumlungur á lengd, og ekk-
ert fræ varð fullþroska. Ef það yrði al-
mennt hjer á landi, að yrkja t. d. bygg, til
þess að hafa það sem grænt gjafafóður
handa kúm eða til þess að geyma það sem
súrhey, myndi það, ef til vill, hjer á landi,
eins og víða erlendis, virðast hentugt að
blanda saman við byggið frækornum jurta
þessara, er sáð væri, því að þessi blöndun
gefur meira gras af sjer, einkum neðan til,
þar sem byggið er opt heldur gisið.
Smári. »
Af smárategundum vex Trifolium repens
(smári) óræktað hjer á landi, eins og mönnum