Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1890, Qupperneq 26
En hitt er líka hugsanlegt, að ættartala Breiðfirð-
inga hafi snemma aflagazt í munnmælunum1, og
hafi nafnið Ingjaldr (sem annars var líka ættgengt
hjá Ynglingum) komið inn í hana úr ætt Helga
magra, er var nátengd forfeðrum Breiðfirðinga, en
Helga- (og Ólafs) nafnið úr ætt Sigurðar hjartar,
sem líka hefir verið þeim nátengd, hafi báðar ætt-
irnar verið komnar frá Ragnari í móðurkyn. En
hvernig sem þessu er varið, þá er ættartala Breið-
firðinga að öllum líkindum miklu eldri en frá dög-
um Ara fróða, og þótt Helgi konungr Ólafsson
hefði ekki verið forfaðir Breiðfirðinga að langfeðga-
tali, þá væri sögusögnin um það, að hann hefði átt
dóttur Sigurðar orms í auga, eins góð og gild fyrir
því. fví að ef vér setjum svo, að Breiðfirðingar
hefðu sjálfir búið til ættartöluna sér til vegs, þá má
1) það virðist auðsætt, að Breiðfirðingar hafi ekki
haft neinar greinilegar sögur um nánustu forfeðr Olafs
hvíta, þar sem þess er hvergi getið, hvar þeir áttu heima,
nema hvað þáttrinn af Upplendinga-konungum í Hauks-
bók (Fas. II. 101—106, VÁ. II. 49—51) segir, að Guð-
riiðr sonr Hálfdanar hvítbeins hafi verið konungr á
Heiðmörk eptir föður sinn (sbr; Hkr., Yngl. 49. k. 38.
bls.). Frá þessum Guðröði er Olafr hvíti talinn fjórði
maðr (Islb. 12. k., Ln. 2. 15) og^ kemr það alveg heim
viðírsk rit, er kalla langafaföður Olafs Guðröð (Godfred).
En það eru einmitt aðalatriðin í langfeðgatali Breið-
firðinga : 1. að þeir voru Ynglinga-ættar. 2. að ættfaðir
þeirra í Noregi var Hálfclan hvítbeinn Upplendinga-kon-
ungr, sem líka var ættfaðir Haralds hárfagra. 3. að sá
sonr Hálfdanar, sem þeir voru komnir frá, hét Guðröðr.
1 þessum atriðum var sízt hætt við, að fræðimönnum
ættarinnar mundi skjöplast, en hitt virðist haía verið ó-
ljósara fyrir þeim, hverjir voru milliliðirnir milli Guð-
röðar og Olafs konungs í Dýflinni (sumir telja þá 3,
einsog var, sumir aðeins 2: Fms. I. 246. Fas. II. 104).
þar höfum vér einungis nöfnin tóm, og þau gátu auð-
veldlega farið milli mála, þegar engar sögur fylgdu
þeim.