Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1899, Side 115

Eimreiðin - 01.07.1899, Side 115
235 nú tekið miklum eða litlum framförum á þessu tímabili. Sem sönnun fyrir því, að framfarirnar séu eigi alllitlar, bendir hann fyrst á, hve stórkostlega viðskifta- magn verzlunarinnar við önnur lönd hafi vaxið (t. d. úr rúmum 3 milj. 1849 upp í rúmar 15 milj. 1896) og siglingar til landsins aukist (t. d. lestarúm út- lendra skipa 1863—72 rúmar 15 þús. smálestir, en 1896 nálega 72 þús. smálestir). Af hinum útfluttu vörum séu landvörurnar hér um bil */, og hafi vörumagnið, að því er þær snertir, haldist nokkumveginn óbreytt hinn síðasta mannsaldur. Aftur hafi útflutningur á sjávarafla, sem nú sé um 2/s alls þess, er útflutt sé, aukist stórum. Þannig var t. d. 1849 ekki flutt út nema 5lU milj. pd. af salt- fiski, en 1896 rúmlega 22 milj. pd. Það sé því auðsætt, að sjávarútvegurinn hafi tekið meiri framförum en nokkur annar atvinnuvegur, enda hafi á síðustu árum margt verið gett, til þess að styðja hann: keypt þilskip, bygð íshús, veitt lán úr landssjóði, breytt hjúalögum, auknar eimskipaferðir o. s. frv. »En þrátt fyrir þessar framfarir«, segir höf., »er þó enn mikils í vant. Fyrst þegar menn taka að reka fiskiveiðar á eimskipum, má vænta, að íslendingar geti fyllilega fært sér í nyt fjársjóðu hafsins. Unz það verður, verða þeir að láta sér lynda, að Eng- lendingar, Frakkar og Ameríkanar hrifsi úr höndum þeim þau dýrindi, sem þeir sjálfir ættu að njóta. Þannig er t. d. sagt, að afli Frakka einna við ísland sé meiri en íslendinga sjálfra. Enn Tneiri samgöngubætur, einkum lagning ritsíma og raddsíma millum héraða, munu og geta aukið aflamagnið stórkostlega. Eins og nú er á statt, getur verið algert aflaleysi og atvinnuskortur á einum stað, þó gnægð sé af fiski í nálægum fjörðum, án þess að sjómenn viti af; og þó þeir nú vissu það, þá mundu þeir ekki á sínum opnu fleytum geta fært sér það verulega í nyt. Ef menn, eins og á Finnmörk, hefðu raddsíma millum allra fjarða og eimskútur til fiskiveiðanna, þá mundi rnega margfalda aflamagnið mörg- um sinnum.« Yfirlit yfir innfluttar vörur segir höf. bendi mjög á bættan efna- hag manna, t. d. aukin sykurkaup (1840: 1,81 pd. á mann, en 1896: 27,92 pd.) og kaffikaup (1840: 1,54, en 1896: 10,33). Reyndar sé sykureyðslan á mann hálfu minni en í Danmörku, en hinn mikli vöxtur hennar bendi þó á bættan efnahag og sýni, hve fátæktin hafi verið mikil áður. Kaffieyðslan þykir honum furðu mikil, því hún sé meiri en í nokkru öðru landi í Norðurálfunni. En hann gætir þess ekki, að á íslandi er svo sem ekkert drukkið af tei, en mikið í öðrum löndum. Samanburðurinn verður því ekki réttur, nema hvorttveggja sé tekið í einu lagi, bæði te og kaffi. Merkilegt er að sjá, að þrátt fyrir aukið kaupmagn var nákvæmlega jafnmikið keypt af brennivíni á mann árið 1896 eins og 1840 (5,05 ptt.). Brennivínsdrykkjan hefir því ekkert aukist og þakkar höf. það hinum öflugu bindindishreyfingum nú á síðustu árum. — En auk þess að viðskifta- magnið hefir vaxið, hafa íslenzku vörurnar hækkað mjög i verði í samanburði við útlendu vöruna. Þannig þurfti t. d. 1849 9,7 lpd. af saltfiski eða 35,5 pd. af ull til þess að kaupa eina rúgtunnu, en á síðustu árum hefir hún fengist fyrir 7 lpd. af saltfiski eða 22 pd. af ull. í miðkafla ritgerðarinnar skýrir höf. ffá, á hvem hátt verzlunin sé rekin (lausakaupmenn, fastakaupmenn, kaupfélög o. s. frv.) og hve óheppilegar afleið- ingar vöruskiftaverzlunin hafi í mörgum greinum. Kaupfélögin álítur hann að hafi gert mikið gagn, og megi vel vera, að þau eigi enn mikla framtíð í vænd- um. Þó hafi hinar miklu samgöngubætur hinna síðustu ára dregið töluvert úr nauðsyn þeirra, og geti því vel svo farið, að samkepnin hleypi svo miklum dug í fastakaupmennina, að þeir nái til sín allri verzluninni aftur. Ekki lízt honum á þá tillögu, að láta kaupfélögin fá einkarétt til allrar verzlunar í landinu. »Það
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.