Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Side 10
Úr bréfum Sveins læknis Pálssonar
Nanna Ólafsdóttir valdi og bjó til prentunar
Frjáls þinn og auðugur andi
sér átti og nýtti
álfaslot hvörjum í hamri
og hœgindi í skýjum
búgarð hvörs í blómsturs
bikari miðjum,
og hvörn til viðtals sér valdi
af vitringum liðnum.
Bjarni Thorarensen
Sveinn Pálsson (1762—1840) náttúrufræðingur og læknir var fæddur
að Steinsstöðum í Tungusveit í Skagafjarðarsýslu, sonur Páls Sveins-
sonar bónda og gullsmiðs þar og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur.
Sveinn Pálsson reit ævisögu sína, líklega á seinasta aldursári,1 og
segir um föður sinn, að hann hafi verið nafnkenndur fjölsmiður, en
um móður sína, að hún hafi verið skörpustu gáfum gædd, margfróð,
einkum í heilagri skrift. Hún var einnig yfirsetukona og skörungur
mikill, heima og heiinan. Sveinn varð stúdent frá Hólaskóla 1782.
Næsta ár var hann við sjóróðra í Njarðvíkum og segir í ævisögunni,
að það hafi verið honum drjúg æfing undir lífið, því að síðar á ævinni
neyddist hann til að stunda sjóinn jafnframt lækningum til þess að
geta lifað. Hann lærði lækningar í Nesi við Seltjörn hjá frænda sínum
Jóni Sveinssyni landlækni. Var þar í fjögur ár án þess að taka próf,2
en fór svo utan til Kaupmannahafnar 1788 og var þar önnur fjögur
ár í læknisfræði. Jafnframt stundaði hann náttúruvísindi og naut þá
stuðnings manna í þeim fræðum, er höfðu um þær mundir stofnað
Naturhistorie Selskabet. Frá þessu félagi hlaut hann 3ja ára ferða-
styrk 1791, er hann hafði lokið prófi í náttúruvísindum, og kaus
hann að fara til Islands til rannsókna. Var ætlun hans að fara síðar
utan aftur og ljúka við læknisfræðina, en af því varð aldrei. Lágu
til þess ýmsar ástæður, svo sem peningaleysi, svo og það, að hann
kvæntist unnustu sinni, Þórunni Bjarnadóttur landlæknis Pálssonar,