Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Side 37
ÚR BRÉFUM SVEINS LÆKNIS PÁLSSONAR
37
Til Þorgeirs Guðmundssonar, trúkennara og síðar prests í Glólundi
S. T. Hr. Catechet Th. Gudmundsen!1
Jeg medtók í Sumar med bestu skilum 8 Exempl. af Ármanns2
3ja árgángi, ásamt briefi af lta Apríl f. á. er eg skildugast þacka,
enn svo verdr ad seig<i)a hvurja sögu sem hún er vaxinn til! Jeg
gleimdi í fyrra ad minnast þess, ad mínir 3 vidbættu Subscribentar
áskildu ad fá undir eins þá 2 fyrri Árganga, svo þeir ættu Ritid Heilt,
og hefnast nú á mier med því ad betala ecki þennann Árgáng fyrri
enn hinir koma, hvad ef skéd giæti med fyrstu Vorskipum til Vest-
mannaeja — hvar jeg mun höndlun hafa — skyldi andvirdi þess
heila anvísast hiá Kaupmanni Simonsen. Annars þykir þeim jeg til
veit Ritid halda velsvo verdi sínu, enn þótt þeir aumki Önund,3
enn jeg spái þeim, ad úr hönum muni med tídinni verda merkis-
madur. Herra Professor, Archivar Magnussen4 mun mín vegna sem
í fyrra, betala þau tilsendu 5 Exempl. med 3 rd 32 sk. r(eidu) s(ilf-
urs). Kríngumstödurnar (sic) leyfa ej meira um sinn! Þessu nærst
gratulera eg ydr hiartanlega, í fylgi háttvyrds br(éfs) frá 27da April
s. á. og þó öllu heldur voru kiæra Bókmenta Félagi, med Ydar For-
setudæmi5 vid sama, undir eins og jeg aflegg Háttnefndu Félægi
audmiúkt þacklæti fyrir tilsendann Skírnir og fyrra bindi þeirrar, ad
mínu áliti, merkilegu Málshátta Bókar,6 en þó eg blygdist vid ad
taka vid þeim án allrar verdskuldunar gefins, er þó verdur svo ad
vera í þetta sinn. Mier dettur í Hug, ad jeg á fyrri árum skrifadi
saman Ritkorn á dönsku umm þá íslendsku Jökla, sendi þad þáver-
andi Naturhistorie Selskabi i Kh. sem gaf því gódan Róm, en þar
þad ej væri eiginlega eptir Félagsins útgefna Rita plani (sem var
strikte naturhistorisk), sendu þeir þad til prentunar svonefndu Topo-
graphisku Felagi í Norvegi, hvarum jeg sídann eckert veit. Annars
voru vid hvörn Jökul tilfærdir hönum nálægir vegir, vatnsföll þadann,
og stutt ágrip af Eldgosum etc. er eg gat fundid, á fyrri og sídari
tímum m. fl. Leyfdi mier tíminn ad snúa þessu á ockar mál og senda
enu Heidrada Félagi byrjun þess, þó ej væri meir í fyrstu, og heyra
hvört verdugt álitist til ad giörast fleirum kunnugt, mundi mier ecki
ógédfelt, enn skyldugt þykia, ad eyda þar til minni ad líkindum
stuttu eptirleidis Hierverutíd.7
Ad endíngu verd eg ad seig<i)a Ydur: Ad eg hef frá fyrstu af
verid fastur kaupandi félagsins útgefnu bóka, sumra in duplo, hiá