Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Side 58

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Side 58
58 FINNBOGI GUÐMUNDSSON En annál Flateyjarbókar og þar með bókinni lýkur á þessa leið árið 1394: Nú áttu menn þetta haust að vinna eiða að fé sínu, og minnkuðu fleiri sína peninga [þ. e. a. s. töldu ekki allt fram til skatts]. Hallæri mikið til kostar og skreiðar nær um allt land. Vor kalt, grasvöxtur lít- ill, fellir nokkur. Átta árum síðar dynur Svartidauði yfir, og er talið, að Jón Hákon- arson hafi dáið í honum á bezta aldri rúmlega fimmtugur. Þótt bækur þær tvær hinar miklu, er hér hafa verið nefndar, gengju að því er virðist úr ættinni snemma á 15. öld, komust þær aftur í hendur kunnra bókamanna og höfðu þannig sín áhrif, þ. e. örvuðu til enn frekari bókagerðar í landinu. Sigurður Nordal hyggur í formála 1. bindis Flateyjarbókar 1944, að Þorleifur Árnason hafi eignazt bókina um leið og hann keypti hálfa Víðidalstungu af Guðnýju, dóttur Jóns Hákonarsonar, og Sveini Bergþórssyni manni hennar rétt fyrir 1416 og bókin hafi síðan verið erfðagripur í ætt hans, unz Jón Finnsson í Flatey, er kominn var í beinan karllegg af Þorleifi, gaf hana 1647 Brynjólfi Sveinssyni biskupi. Jonna Fouis-Jensen, nú prófessor í Kaupmannahöfn, sýndi fram á það í ritgerð um yngsta hluta Flateyjarbókar í Afmælisriti Jóns Helgasonar 1969, að Þorleifur Björnsson hirðstjóri, sonarsonur Þor- leifs Árnasonar, hefði átt Flateyjarbók á ofanverðri 15. öld og sjálfur skrifað hluta viðbótarinnar. En hún telur það ekki þurfa að sanna, að Þorleifur afi hans hafi eignazt bókina, eins og fyrr segir, hún kunni að vera komin til hans eftir öðrum leiðum, er hún bendir á í grein sinni, þótt hér verði ekki farið út í þá sálma. Handritið Vatnshyrna, er svo var nefnt löngu síðar líkt og var um nafngiftiná Flateyjarbók, kom í arfahlut Helga, sonar Jóns Há- konarsonar, en rann síðar við lát Helga fyrst til Margrétar ekkju hans og því næst föður hennar, Þorleifs Marteinssonar. Bókin lenti síðar hjá bróðurdóttur hans, Solveigu Ólafsdóttur, er átti Guðmund Þor- láksson. En sonarsonur þeirra var Bergþór Grímsson (lögréttumanns Jónssonar), er seldi Guðbrandi biskupi Þorlákssyni Vatnshorn í Haukadal 1581 og gerðist um leið próventumaður biskups, fluttist að Hólum skömmu síðar og hafði þá Vatnshyrnu með sér. Þar kynntist Arngrímur Jónsson bókinni og nefndi hana svo eftir heimili Berg- þórs. Þess má loks geta, að Guðbrandur biskup var dóttursonur Jóns lög- manns Sigmundssonar, er aftur var dóttursonur |Þorleifs Árnasonar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.