Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1976, Qupperneq 101
LANDSBÓKASAFNIÐ 1975
101
BRUNAVARNAKERFI Að frumkvæði og fyrir atbeina Mennta-
í SAFNAHÚSINU málaráðuneytisins var á árinu komið upp
í Safnahúsinu brunavarnakerfi af norskri
gerð. Kerfið er tengt Slökkvistöð Reykjavíkur, og eykur það ásamt
öðrum varúðarráðstöfunum, er gerðar hafa verið, mjög á allt öryggi
í húsinu.
ÞJÓDARBÓKHLADA í frumvarpi því til fjárlaga fyrir árið 1977,
sem lagt var fram á alþingi í síðastliðnum
mánuði, er gert ráð fyrir 50 millj. króna
fjárveitingu til þjóðarbókhlöðu. Ætti sú fjárveiting ásamt því fé,
sem eftir stendur af fyrri fjárveitingum og ekki hefur þegar verið
varið til undirbúnings, að nægja til þess, að unnt verði að hefjast
handa um framkvæmdir á árinu 1977.
Menntamálaráðherra hefur fyrir nokkru rætt lóðarmálið vandlega
við borgarstjóra og í framhaldi af þeim viðræðum ritað honum bréf
um það, og er þess að vænta, að það verði leyst í tæka tíð. En frá
því hefur verið áður skýrt, að Borgarráð féllst 11. janúar 1974 á til-
lögur arkitekta frá 6.12. 1973 um staðsetningu bókhlöðunnar með
því skilyrði, að samningar tækjust „við ríkisstjórnina, áður en bygg-
ingarframkvæmdir hefjast, um eðlilegt endurgjald til borgarsjóðs fyrir
þá skerðingu á Melavellinum, sem fyrirhuguð staðsetning hefur í för
með sér“.
Nú er vitað, að uppi eru ákveðnar áætlanir um íþróttasvæði á landi
austan Norræna hússins og vestan Njarðargötu, er að lokum fái leyst
gamla Melavöllinn af hólmi. Bókhlaðan sjálf heggur raunar ekki nær
honum en svo, að hægt verður, ef þurfa þykir, að nýta hann sem
æfingavöll, meðan á bókhlöðusmíðinni stendur.
Landsbókasafni, 1. nóvember 1976.
Finnbogi Guðmundsson.