Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1897, Side 18
12
fæstir þeirra, sem geta það, munu gjöra það, læt jeg þess-
ar reikningslegu sannapir mínar fylgja hjer með.
Jeg hef reiknað út, hve mikill vceri orðinn stofnsjóður
Dalafjelagsins, hefSi verið byrjað á að leggja í hann 4°/0
af fjelagsverði útlendu vörunnarl886, þegar fjelagið var stofn-
að, og því haldið áfram til ársloka 1896, og svo hef jeg haldið
reikningunum áfram eptir áætluntil aldamótanna og gjört ráð
fyrir sömu verzlunarupphæð og til þess tíma, að meðaltali'
Einnig hef jeg gjört sömu athuganir við kaupfjelag Ding
eyinga, frá því það var stofnað 1882, og einnig látið þær
ná til aldamótanna. Þann reikning hef jeg byggt á
skýrslu Pjeturs alþm. Jónssonar á Gautlöndum, sem
prentuð er aptan við hina ágætu ritgjörð hans í 7. árg.
Búnaðarritsins, en þar sem hún ekki nær nema til 1892,
hef jeg líka orðið að byggja á áætlun eptir það, og gjöri
jeg ráð fyrir, að skakkinn sje ekki mikill á þeim árunum,
sem liðin eru, með því þar hef jeg stuzt við það, sem
formaður fjelagsins hefur eptir minni getað sagt mjer um
verzlunarupphæðina hvert ár (1893—96).
Að endingu hef jeg á sama hátt reiknað, hve miklu
stofnfje væri búið að safna í landinu á næstu aldamótum,
ef öll íslands verzlun hefði verið í höndum verzlunarfjelaga síð-
an 1882 (þegar Kaupfjelag Þingeyinga var stofnað) með sömu
álagningu tíl stofnfjársöfnunar. Þar hef jeg farið eptir
verzlunarskýrslunum í C-deild stjórnartíðindanna 1887,
1890 og 1895, er ná til ársins 1894, en svo hef jeg áætl-
að sömu verzlunarupphæð 1895—1900 sem var 1894, sem
þó mun mikils til of lágt.
Tölur þessar set jeg hjer lesendunum til athugunar
ásamt hinum virkilega „Kaupfjelagssjóði“ Dalasýslufje-
lagsins.