Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1897, Blaðsíða 49
43
laust þokað jarðskorpunni í þá mynd, er nú hefði hún, en
það væri aðeins hjálíðandi augnabliksástand, er í nútíman-
um tæki jafnmiklum breytingum, sem það æ hefði tekið
og mundi taka. Þcssi kenning var þá aðeins heimfærð
til jarðmyndunarinnar. Spencer fór lengra og heimfærði
framþróunarhugmyndina til allra fyrirburða í alnáttúrunni.
í hinum mörgu bókum sínum hefur hann rakið og fært í sam-
felda heild allar þekktar verkanir alheimskraptarins, allt frá
óskepisþokunni til mannlífsins með þess rísandi og fallandi
menningaröldum, og hvervetna hefur hann heimfært fram-
þróunarhugmyndina og fundið frainhaldandi þrotlausa starf-
sémi hins sama óeyðanlega alheimskraptar, er miðar að ó-
þekktu fjarlægu marki. Hann rekur framþróunina stig
fyrir stig gegnum hin líflausu efni, efni líffæranna og lífið
sjálft. Einnig hann flokkar, eins og Comte gjörði, allt það,
er maðurinn skynjar, eptir þeim þroskastigum, er það
krefst. Efst í þeirri röð setur hann það, sem hann kallar
yfir-efnislega fyrirburði (superorganisk fenomen), nefnil.
hina fjelagslegu fyrirburði. Einnig Spencer telur fjelags-
fræðina blóm hinnar reynsluvisindalegu heimspeki. Yerk-
efni það, er Comte hafði sett sjer fyrir að leysa, en megn-
aði ekki, það hefir Spencer leyst af hendi. Hann hefur
með ritum sínum fest og grundvallað fjelagsfræðina. Hann
hefur með stórkostlegri elju safnað sögulegum staðreynd-
um, flokkað þær og sett í kerfi, og þannig fundið lögmál
hinnar fjelagslegu framþróunar. —
Þegar talað er um Spencer, leiðist hugurinn ósjálfrátt
til annars manns, nefnil. Darwin’s, enda eru þessi tvö nöfn
iðulega sett í samband í ræðu og ritum. Því verður
ekki heldur neitað, að stefnur þessara tveggja stór-vísinda-
manna liggja samhliða. Eannsóknir Darwin’s styðja og
fuilkomna fræðikerfi Spencer’s. Framþróunarlögmálinu, er
Spencer álítur, að alnáttúran hlýði, hefur Darwin sýnt ó-
mótmælanlega að hin lifandi (organiska) náttúra hlýðir.
Kjarninn í kenningum Darwin’s er fólginn í hinum all-
kunnu kraptsetningum hans: „barátta fyrir tilverunni11 og