Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1897, Blaðsíða 30
24
ekki skoðað fyrir framtíðina nema sem skylda, er kver
einstaklingur gengur vakandi að, og öðlast í staðinn þann
hagnað og þau rjettindi, sem allir hljóta að sjá að eru miklu
meira virðí en skyldan.
Eins og það er alveg óumflýjanlega nauðsynlegt að
skotið sje loku fyrir það, að fje þetta verði tekið út skil-
yrðislaust, þegar hverjum einstökum þóknast, eins, og ekki
síður, er mjög áríðandi að fyrir það sje girt, að eign manna
í stofnsjóði gangi kaupum og sölum til hvers, sem hafa
vill, og jeg álít, að þetta sje miklu varhugaverðara en bein
útborgun, því með henni verður fjársaínið að öllum lík-
indum gagnslaust en líka meinlaust. en með því að hafa
það til sölu getur það orðið hæði hverju einstöku fjelagi
til óhamingju og þjóðinni í heild.
Meðan sá óheilnæmi þjóðlöstur, hin heimskulega tor-
tryggni til allra þeirra, sem standa fyrir þýðingarmestu
framfarafyrirtækjunum, hefur jafnmikil völd og enn er,
meðan almennt hugsunarleysi um framtíðina á sjer stað,
með að eins fáum undantekningum, og á meðan menn ekki
eru farnir að sjá fullglöggt hvað fjársafn það, sem hjer
um ræðir, hefur mikla þýðingu fyrir hvern einstakan og
mannfjelagið í heild, þá má ekU einungis búast við því,
að flestir mundu láta inneign sína í stofnsjóði fala fyrir
fullt verð, heldur mundu æði margir klappa iof í lófa, ef
þeir mættu láta hana upp í skuldir sínar og aðrar nauð-
synjar og það jafnvel með aflollum, og afleiðing þessayrði
eflaust sú, að úr þessu almenna aurasafni yrði auðsafn
einstakra manna, tiltölulega mjög fárra; og þeir menn,
sem eru líklegastir til þcss að safna þessu fje í sínar
hcndur, eru kaupmcnnirnir, þegar þeir fara að veita þessu
fje eptirtekt, og Jjeyar svo vœri homið færu fjelögin að sjá,
hvar þau mundi reka að landi.
Tilgangur fjelaganna í öllum efnum, og sjor i lagi
þessum, verður að vera sá að auka hagsæld almennings
yfirleitt og þar af leiðandi gjöra hvern einstakling sein
sjálfstæðastan og óháðastan að unnt er, sem hlýtur að