Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1897, Blaðsíða 57
51
hinni fornu alkemíu í efnafræði vorra tíma, og stjörnu-
spám fyrri tíma í stjörnufræði þessara tíma, hið samalög-
mál hefur breytt söguheimspeki fyrri alda í fjelagsfræði
vorra tíma.
En svo er eitt atriði enn, er gæta verður. Fjelags-
fræðin er ekki einungis hugsanrjett afleiðing og ávöxtur
af náttúrurannsókn fræðimannanna; í henni felst og annað
og meira, nfl. hinar siðferðislegu kröfur og þarfir vorra
tima; hún er vegvísir og leiðarstjarna mannanna að því
siðferðislega marki, er vjer eygjum hæst og göfugast. —
Hið fjelagslega ástand og skipulag hverrar þjóðar og hvers
tíma er mælikvarði, sem sýnir hinn andlega og siðferðis-
lega þroska. Hinar siðferðislegu kröfur, sem fólgnar eru
í núverandi fjelagsfræði, standa í nánu sambandi við þroska-
stig mannanna, eða rjettara sagt, eru ávöxtur þess þroska,
sem mannkynið hefir náð. Aldrei frá upphafi hafa jafn-
mörg og margbreytt fjelagsleg og siðferðisleg verkefni
legið fyrir mönnunum til úrlausnar eins og nú, og aldrei
hafa þau vísindi, er snerta hin fjelagslegu hlutföll, verið
stunduð af jafnmiklu kappi sem nú; í þjónustu þeirra eru
allir hinir beztu kraptar mannanna, enda erum vjer nú
komnir langt fram hjá hinni einstrengingslegu oftrú
Eousseau’s á einstaklingnum og hinu óbreytilega manneðli.
í vorum augum er mannfjelagið, eða mannlífið í heild sinni,
háð allstaðar nálægum lögmálum, sem enginn einstaklingur
getur óhegndur brotið á móti af sínum svo kailaða frjálsa
vilja, því þau vefa sína smágjörðu en óslítanlegu orsaka-
og afleiðinga-þræði inn í öll mannleg hlutföll, svo hin
smæstu sem hin stærstu. — Yísindagreinir, er áður voru
taldar sjálfstæðar, svo sem þjóðmegunarfræðin, sem var
byggð á einstaklingshagsmununum, hegningarrjetturinn,
sem var byggður á einstaklingsábyrgðinni einni, þessar og
margar fleiri sjervísindagreinir hverfa smámsaman inn í
eða innlimast hinni almennu fjelagsfræði og fjelagspólitík.
Hinar nýju fjelagsskoðanir hafa jafnvel tekið í þjónustu
sína og gagnsýrt fjarskildar vísindagreinir, svo sem sögu-
4*