Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1897, Page 50
44
„náttúru úrvalið“, og einmitt þetta'er aðalskilyrðið fyrir
framþróuu alls, sem líf hefur, Eu afleiðingarnar af rann-
sókn og sönnunum Darwin’s ná lengra en til líffræðinnar
einnar. Eins og ölduhringarnir út frá steininum, sem
slöngvað er í vatn, fara æ stækkandi, þannig hafa öldurn-
ar af kenningu Darwin’s breiðst út yfir stærra og stærra
svæði vísindanna og hinnar almennu þekkingar, og valdið
gagngjörðri brejffingu á hinni almennu lífsskoðun. Hin
heimspekilega þýðing Darwin’s er aðallega fólgin í þvi, að
hann ruddi gjörsamlega burtu þeirri hugmynd eða kreddu,
að mennirnir hefðu fuudið og skilið tilgang og endimark
tilverunnar (finalitets idé). Áður höfðu menn gjört forsjón-
inni upp ákveðinn, skiljanlegan tilgang með sköpunarverk-
inu, og leitazt við að heimfæra alla fyrirburði undir fyrir-
hugaðar ráðagerðir hennar, til þess að ná þessu marki.
Darwin sýndi og sannaði þar á móti, að í sjálfri náttúr-
unni ráða lögmál, er eyða og afmá allt hið miður hæfilega,
en velja úr hið hæfasta til að æxlast og festa eigin-
leika sína i lífinu. Hann sýndi, að lögmál náttúrunnar
starfa sjálfkrafa að því að framleiða hið hentugasta fyrir
lífið. Dað, sem er hentugast fyrir viðhald og framþróun
lífsins, það verður, en hið hentuga fyrir lífið er ekki or-
sökin. Þess vegna sjáum vjer að cins orsakasamböndin
(kausalitet) en engan upprunalegan tilgang (finalitet).
Yið nánari íhugun sjest brátt, að þessi skoðun hlýtur að
hafa áhrif, ekki einungis á afstöðu einstaklinganna hvers
gagnvart öðrum, heldur og á fjelagsheildirnar. Baráttan
fyrir tilverunni á sjer engu síður stað millum flokka og
fjelagsheilda en á millum einstaklinganna. Hið náttúr-
lega úrval á sjer engu síður stað meðal stofnana og skipu-
laga en meðal einstaklinga. Að fullkomnari stofnanir ryðji
hinum ófullkomnari úr vegi, að fullkomnara skipulag
komur í stað ófullkomuara, að þroskaðri þjóðflokkar út-
rýma hinum óþroskaðri og spilltari, þetta allt sýnir glögg-
lega sannindi þessa alheimslögmáls.
Fjelagsfræðin kennir ekki um neinn ákveðinn tilgang