Tímarit kaupfjelaganna - 01.01.1897, Síða 54
48
mannúðarinnar, en sannleikurinn er, að það var afnumið,
af því það var ekki lengur kentugt, átti ekki lengur við
kið breytta ástand. Því nú var framleiðslan og vinnan
káð ávöxtun íjárstofnanna, svo ánauðarinnar þurfti ekki
lengur með í kennar gömlu nymd; ánauð auðsins var
komin í stað kennar, og Karl Marx og margir fleiri kafa
sýnt og sannað, að sú ánauð er alls ekki siðferðislega
rjettmætari en kin gamla bólfestu ánauð. Samt má búast
við, að kún verði ekki afnumin af tórnum siðferðiskvötum,
keldur þá fyrst, þegar kún ekki er lengur kentug eða
samsvarandi fyrirkomulaginu á framleiðslu auðsins. Á
kinn bóginn knýja siðferðislegar hvatir manninn til þess
að undirbúa það ástand, er gjörir ánauð auðsins tilgangs-
lausa og gagnslausa einnig fyrir kinar ráðandi stjettir.
Þó að Karl Marx kunni að hafa fullyrt heizt til
mikið og margt, þá er kitt þó víst, að kann opnaði fyrstur
augu manna fyrir því nána orsaka- og afleiðinga-sambandi,
sem er á milli kins ytra skipulags mannlífsins og sálar-
lífsins eða siðferðismeðvitundarinnar, og með því hcfur
hann hrundið vísindunum langt áleiðis á þeirri braut, er
Comte kafði markað þeim og stefnir að því marki að
sameina í eina samfelda keild allar þær vísindagreinir,
er snerta mannfjelagið sem slíkt.
Þetta er það, sem fjelagsfræðin sjerstaklega á að
þakka Karl Marx, en það kafa margar fleiri stoðir runnið
undir þessa ungu vísindagrein. Hún er frábrugðin öðrum
vísindum í því, að aðalverkefni hennar er að samþýða
og færa í samhljóða keild þau sannindi, er kin ýmsu sjer-
vísindi kafa fundið. Hún safnar í eina heild kinum
dreyfðu, samhengislausu staðreyndum, og sýnir orsaka og
afleiðing asamböndin í millum þeirra. Sumir kafa því
haldið því fram, að fjelagsfræðin væri í raun og veru
engin sjálfstæð vísindagrein, en hið sama mætti þá einnig
segja um flestar aðrar vísindagreinir, því þær eru flestar
byggðar á sannindum, er önnur vísindi kafa áður fundið.
Með sama rjetti mætti . egja um byggingameistarann, að