Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2001, Blaðsíða 80

Andvari - 01.01.2001, Blaðsíða 80
78 AÐALGEIR KRISTJÁNSSON ANDVARI vítt um Evrópu, en kvæði hans ort á íslensku einungis í þröngum hóp (Lbs.1308, 4to). Sem ritari Arnanefndar gaf Jón Sigurðsson Gísla einnig meðmæli. Þau eru dagsett 1. mars 1864. Þar segir að allt frá skólaárum sínum hafi Gísli verið í fremstu röð íslenskra námsmanna sakir gáfna og mannkosta, og hann sé meðal „de básta nulejvande islándska skalder". Rannsóknir hans á íslensk- um bókmenntum hafi einkum beinst að íslenskri ljóðagerð og hann hafi unnið við söfnun eldri kvæða og kvæðabrota. Þá sé hann vel heima í enskum og frönskum bókmenntum og hafi haft „tilfálla att kunna personlig besöka Paris och London“. Auk þess sé Gísli prýðilega máli farinn. Jón lýkur umsögn sinni svo að það yrði ótvíræður fengur fyrir háskólann í Lundi að ráða hann til starfa. Meðmæli Konráðs Gíslasonar 2. mars s. á. voru síst lak- ari. Hann segir sér það óblandna ánægju að gefa Gísla meðmæli, en verðleik- ar hans séu svo alþekktir að þeirra sé ekki þörf, en nefnir sérstaklega þekk- ingu hans á fomum skáldskap og norrænni goðafræði. Daginn eftir, 3. mars, skrifuðu þeir W. Chr. Werlauff og C. C. Rafn einnig meðmæli, þar sem þeir staðfestu fyrri umsagnir um Gísla. Rúmri viku síðar, 12. mars, eru dagsett meðmæli frá Carl Sáve prófessor í norrænum málum við háskólann í Uppsölum. Hann vitnaði til orða Konráðs Gíslasonar og sagðist vera honum sammála og hafa engu við orð hans að bæta. Þegar um kennarastól í hinu fomnorræna máli væri að ræða væri enginn því starfi betur vaxinn en Gísli Brynjúlfsson. Engu að síður þótti Sáve miður að Gísli væri ekki „Svensk till födsel och uppfostran“ og talaði um fyrirlestra „utgáende frán annan Nordisk standpunkt“. Þau ummæli sem hér hefir verið vitnað til voru mjög á eina lund um þekk- ingu Gísla á fomum fræðum. Áður höfðu einstaka raddir heyrst þar sem annað hljóð var í strokknum. Hinn 29. október 1861 skrifaði Benedikt Grön- dal Jóni Ámasyni frá Kaupmannahöfn og sagði: Hefur Gísli verið að prédika heima um skáldskapinn forna, sem hann hefur ekkert vit á? Við vonum hér allir að guð gefi hann komi aldrei með þetta blessaða kvæðasafn, sern félagið hefur glæpzt á, því það verður hryllileg endaleysa. Seinustu orðin, sem hann tal- aði við mig í sumar, voru þetta: „Það segi ég þér satt, góði, að hann faðir þinn hafði ekk- ert vit á fomum skáldskap", og með þetta hefur hann gengið um Þýzkaland og nú sjálf- sagt um England og Frakkland, en þó pabbi hafi sumstaðar villzt, þá mun Gísli aldrei hafa tæmar þar, sem hann hafði hælana, og aldrei hef ég séð einn mann hrúga upp eins óskammfeilnum vitleysum og vilkaarligheder á litlu svæði eins og Gísla, í öllu, sem hann ritar (BG.: Ritsafn V, 119). Pétur Pétursson, forstöðumaður Prestaskólans og síðar biskup, hafði hins vegar mikla trú á Gísla eins og fram kemur í bréfi til hans 25. apríl 1864, þar sem Pétur þakkar honum fyrir „bréf frá 30. f. m.“ og sagði:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.