Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2001, Blaðsíða 154

Andvari - 01.01.2001, Blaðsíða 154
152 ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON ANDVARI samfélagsins, beinlínis í fjöruborðinu. Slíkur komumaður, þessi óræði gest- ur, vekur jafnframt spurningar um mörk heimilisins, og þær brenna á kon- unni sem kannski er ekki viss um hvort nýja húsið sé sá „fjörusteinn“ sem hún leitaði að, eða hvort það er ef til vill jafn tómt eða „holt“ og það hafði áður virst í huga hennar. Einnig hér má sjá hvemig líkamleg nærvera og fjar- vera tengist þeirri þörf fyrir staðfestu sem leitað er í steini eða steinsteypu, eða húsi almennt. Fyrr í sögunni er því lýst hvemig hjónin liggja í rúminu, hún vakandi en hann sofandi; og hér myndast tómarúm í hjónarúmi: Hún dró til sín sængina, vafði henni um sig svo að myndaðist autt bil milli þeirra í rúminu og á þetta auða tóm brá ljósið geisla sínum og klauf nóttina í tvennt; í fyrsta skipti varð smán hennar viðskila við smán hans og gekk sína píslargöngu ein: eftir strætinu nýja og slétta þar sem húsið þeirra stóð. Til beggja handa stóðu þóttaleg hús sem voru sjálfu sér nóg og höfðu dregið fyrir glugga þétt og mjúklega felld tjöld sín til hlífðar því frelsi sem einkalífið naut þar inni. En liti hún á sitt eigið hús blöstu naktir gluggar við og gátu ekki dulið þá staðreynd að húsið var holt að innan.“ (LE 53) Hefur líf hjónanna skroppið saman í þennan hola steinkumbalda? Kjamast hann síðan í handleggnum steinrunna sem konan þarf að dragnast með, nema hún grípi - í einhverjum skilningi - til sama ráðs og brúðurin í „Gefið hvort öðru ...“? Mun hún geta opnað dymar? Skáldsaga Svövu leiðir okkur ekki að niðurstöðum um þessi atriði; ekkert hefur verið til lykta leitt. Við lesand- anum blasa persónur í heimilisleit og sú leit felst í „útvflckun" líkamans og þar með töldum huga og hugsunum, sjálfsmynd, hugmyndum, heimsmynd. VII Þannig fjallar þessi saga, og raunar stór hluti af höfundarverki Svövu, um hvað það er að eignast heimili. Ekki einungis að koma sér upp húsaskjóli, heldur að fara gegnum flókið tilvistarferli: sköpun rýmis sem snýr í senn inn á við, á sér sameiginlegan flöt með hugarlífi, og er staður þar sem maður á fund með öðrum, hvort sem sá annar er sambýlismanneskja, gestur eða jafn- vel sá hluti af manni sjálfum sem horfir út, fer ferða sinna hið ytra; kemur heim en dvelur þó á mörkunum. „I einhverjum skilningi hafa flestir staðir verið fundarstaðir,“ segir landfræðingurinn Doreen Massey í athyglisverðri grein um heimili og staði.7 Það er við hæfi að íslenska orðið „fundur“ skuli vera merkingarríkt og geta eitt og sér vísað til þess hvemig það að hitta aðra (sbr. orðalagið „ég þarf að finna mann“) kann að leiða til þess að maður finni eitthvað, uppgötvi áður óþekkt fyrirbæri, einnig innra með sjálfum sér. Að eignast heimili er í senn ferli og staðfesting. Ferlið vísar á hreyfanleika
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.