Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2001, Blaðsíða 112

Andvari - 01.01.2001, Blaðsíða 112
110 SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR OG ÞORKELL ÁGÚST ÓTTARSSON ANDVARI í framhaldi af því er áhugavert að velta fyrir sér tengslum holunnar á öræfunum og dauða og greftrun Jesú. Þegar Benedikt er nýbúinn að finna holuna sína (sem hann og sögumaður kalla gröf og grýtu; sjá 69; 81; 87; 89) slokknar á prímusnum vegna loftleysis. A þeirri stundu liggur honum við köfnun, eða eins og segir: Og þetta var ekki neitt eðlilegt myrkur. Það var í mesta máta óeðlilegt myrkur, mann sveið blátt áfram undan því í augunum og það tók fyrir kverkar manni, ætlaði að kæfa mann. Og þó var það á hinn bóginn nógu vingjamlegt, vildi fá mann til að sofa, bara sofa, detta út af og sofa. Og hvað átti hann eiginlega að gera með kaffið núna. Til hvers þurfti hann ljós í kvöld? En skyldu þetta nú vera tóm vinahót? Hann reyndi að ráða fram úr þessu, reyndi að átta sig á því. Það skyldi þó ekki vera, að óveðrið væri að ofsækja þá ennþá? Það hefði sjálfsagt byrgt hverja smugu. Það var víst tilætlunin að kæfa þá- (bls. 76-77). Eins og Olafur rekur í erindum sínum er þessi atburður sannsögulegur (1986: 182). Ef til vill er það ástæða þess að Ólafur gerir ekkert úr því að ávallt er vísað til holunnar sem grafar og grýtu. Ólafur kallar holuna hins vegar aldrei annað en grýtu en með því er að sjálfsögðu dregið úr píslartengslum hol- unnar. En þótt þessi atburður hafi sögulegan bakgrunn þá útilokar það ekki textatengsl við dauða og greftrun Jesú. Líkt og gröf Jesú var lokuð með steim (Mt 27:66) er gröf Benedikts lokuð með hlemmi (sjá t. d. bls. 72). í fyrr- nefndu atviki er Benedikt nálægt dauðanum og er aðeins hársbreidd frá þVi að sofna í hinsta sinn, sem endurtekur sig reyndar þegar hann grefur sig 1 fönnina (bls. 88). í báðum tilvikum tekst honum þó að rísa upp aftur, sem minnir jafnframt á upprisu Krists. I ofangreindu atviki er veðrið í hlutverki aðalóvinar Benedikts þar sem það reynir að kæfa hann. Sjá má veðrið sem eins konar tákn þeirra Gyðinga sem lögðust á eitt, með Kaífas æðstaprest i farabroddi, við að fá Rómverja til að krossfesta Krist (Mt. 26:3-5). Það er einnig áhugavert að Benedikt fer alla sína björgunarleiðangra frá gröf sinni, en samkvæmt kristinni túlkunarhefð fólst sigur Krists í sigri hans á dauð- anum. Þannig bjargar Kristur einnig mönnunum frá gröf sinni. Altarisganga kristinna manna er bein tilvísun til þessa. Þegar Benedikt snýr aftur til byggða lýsir sögumaður því með eftirfarandi orðum: „Seint um kvöldið kom hann að Botni, og fékk þar slíkar viðtökur, sem hann væri upprisinn frá dauð- um.“ (bls. 92). Framhald starfs Krists er tryggt með upprisu hans og á sama hátt mætti túlka Benedikt yngri sem „upprisu" nafna síns. Benedikt eldri er hniginn að aldri (á þessa tíma mælikvarða) og starfi hans senn lokið, en nafni hans mun halda uppi merki hans (bls. 92-93). Af öllu framansögðu má ljóst vera að Gunnar Gunnarsson hefur markvisst ofið ævi og boðskap Krists inn í hina sannsögulegu frásögn af Fjalla-Bensa. Þannig verða hversdagslegar hetjuraunir sviðsetning af helstu þáttum úr aevi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.