Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2001, Side 144

Andvari - 01.01.2001, Side 144
142 ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON ANDVARI Svövu, heldur á sér sérkennilega hliðstæðu í fomum nafna sínum sem var líka mikill landnemi og nýbyggjari en var víst ekki mjög feiminn við að nálg- ast konur (en kannski á það einungis við um efnahags- og valdaforsendur hans). Sérríflaskan og grjótveggurinn eiga umtalsverðan samleik í sögunni, komin hvort úr sinni áttinni inn á þetta landnám, þetta nýja borgaralega heim- ili; erlend guðaveig og hleðsla steina sem sóttir hafa verið í íslenska náttúru. Um morguninn hafði eiginmaðurinn tilkynnt konu sinni að hann gæti ekki keypt sérríflösku, allir peningar væru hreinlega búnir. Þeir eru búnir vegna þess að húsið og sérstaklega grjótveggurinn var svo dýr, en það er dæmi um kaldhæðni og kímni Svövu, og raunar líka sálfræðilegt innsæi hennar, að láta átökin snúast um sérríflösku; það er sem dagurinn og veislan velti á þessari flösku. Hún er tákn sem í senn er tómt og þrungið merkingu. „Mér er svo sem sama um þetta sérrí“, hafði konan sagt um morguninn, „það bara ætlast allir til þess“ (VG 12). Frásögnin hefst raunar þegar Snorri er að koma heim, fær- andi hendi. Ekkert fáum við að vita um ferðir hans eða hvemig honum tókst að fjármagna flöskukaupin. En átökin um sérríið sitja enn í þeim hjónum. Hann snerti handlegg hennar, langaði til að „njóta hennar, svæfa óhuginn í brjósti sér, finna vitund sína heila og óskipta í snertingu við hana. En af reynslu vissi hann að hér var hvorki staður né stund frekar en nú: hvítur háls- inn, naktar axlimar undan svörtum aðskomum kjólnum, svuntuslaufan eins og rósótt skraut á lendum hennar vöktu líkama hans minningar um þrá morg- unsins. Hann stóð fanginn og ráðalaus á eldhúsgólfinu milli konunnar og sérríflöskunnar....“ (VG 13). Þessi stutta tilvitnun sýnir hversu hlaðinn texti Svövu er (ekki þó hlaðinn í sömu merkingu og veggur, heldur mettaður, án þess að vera þungur) og hvernig hann miðlar flóknu sambandi tíma og rýmisskynjunar, þrár, fjar- lægðar og nálægðar. Stundir þeirra þarna í eldhúsinu, að morgni og síðla dags rétt fyrir veisluna; stundir á milli hversdags og hátíðar, renna saman (þátíðin í „vissi“ vísar til morgunsins sem rennur í gegnum „hér“ yfir í ,,nú“) og jafn- framt kemur í ljós að allan þennan dag hefur karlmaðurinn líklega verið fang- inn milli konunnar og flöskunnar; staðið þar eins og veggur. Eins og í fleiri sögum Svövu er veggurinn grundvallarmótíf og hann er nátengdur öryggi og öryggisleysi. „Maður er svo öryggislaus þegar maður leigir.“ Þessi kunnu upphafsorð Leigjandans enduróma í mörgum sögum Svövu og þar birtast fjölmargir veggir sem eiga að fyrirbyggja þessa kennd en gera ekki annað en að tvíefla hana. Og veggirnir snúa ekki bara út; þeir eru einnig hið innra, inni á heimilum, rétt eins og hlaðni veggurinn sem er í fyrirrúmi á heimil- issýningu hjónanna umræddu. Hann er raunar ekki fyrsti veggurinn sem nefndur er í sögunni, því að þegar Snorri kemur með sérríflöskuna inn í eld- húsið, svæði konunnar, rís „öryggi" hennar „samstundis eins og veggur á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.