Andvari - 01.01.2001, Qupperneq 89
andvari
HÁSKÓLAKENNSLA GÍSLA BRYNJÚLFSSONAR
87
Stofnuð staða aukadósents í íslenskri sögu og bókmenntum
Hinn 3. janúar 1874 veitti ráðuneytið Gísla leyfi til að halda fyrirlestra án
launa um sjálfvalið efni varðandi fomöld Norðurlanda samkvæmt íslenskum
heimildum, en sótti jafnframt um 800 dala fjárveitingu á fjárlögum 1874-75
l|l að mega setja dósent í íslenskri sögu og bókmenntum við Hafnarháskóla.
h*ingið samþykkti að verða við þessari beiðni og 24. apríl 1874 var cand. phi-
los. Gísli Brynjúlfsson, styrkþegi við Árnastofnun, settur aukadósent við
háskólann og honum gert að halda fyrirlestra á íslandi af og til, en kostnað-
Ur við þá væri Hafnarháskóla óviðkomandi.
I umræðum í danska þinginu um fjárlagafrumvarpið 1874-75 taldi fram-
sögumaður fjárlaganefndar það ekki illa til fundið að fela hæfum manni að
halda fyrirlestra um sögu íslands og bókmenntir við háskólann og á íslandi
yegna sambands íslands og Danmerkur. Það færi vel á því að hefja það á
arinu 1874 þegar minnst væri þúsund ára byggðar í landinu, og í sambandi
V|ð að ganga frá stjórnarskrármálinu væri þetta þýðingarmikið fyrir bæði
löndin (Aarb.f. Kbb.Univ. 1873-75, 156 nm.).
1 bréfi til Eiríks Magnússonar 5. maí 1874 greindi Jón Sigurðsson svo frá
málavöxtum að Gísli hefði verið gerður að „Docent“ við Hafnarháskóla með
800 rd. launum. „Þetta æxlaðist svo, að á ríkisþinginu stakk „Minister“ Hall
UPP á að veita 600 rd. fyrir að lesa yfir íslenzk lög, og það átti Vilh(jálmur)
Rnsen að gera. En vinstri menn sneru þessu, að nokkru leyti eftir innblæstri
Gísla (því hann bauðst til að sætta þjóðirnar) upp í þetta, sem nú varð, og
h^ll hafði það til að fá þá til að gjöra sér einhverja þægð í öðru máli“ (JS.
Bréf- Nýtt safn, 203).
Varðveitt er bréf frá Gísla Brynjúlfssyni til heimspekideildar Hafnarhá-
skóla, dagsett 31. október 1879, þar sem hann rekur þá sögu hvemig staðan
Varð til. Hann segist skrifa bréfið, þar sem hann standi „udenfor det filosof-
iske Fakultet“ og hafi ekki möguleika á að taka þátt í umfjölluninni um hana
P°,að hún varði stöðu hans við háskólann.
1 upphafi árs 1874 segist hann hafa borið fram tillögu um stofnun kennara-
st°ls í sögu íslands og bókmenntum við Hafnarháskóla. Staðan hafi ekki
verið búin til fyrir sig persónulega heldur ísland og hún eigi að vera viðvar-
andi eins og fram hafi komið á Ríkisdeginum. Slík staða hafi ekki verið til
v*ð Hafnarháskóla sem eigi þó að vera hvort tveggja í senn, háskóli íslands
°§ panmerkur, enda aðstæðumar hinar ákjósanlegustu vegna Ámasafns. Það
Se 1 rauninni undrunarefni að ekki skuli fyrir löngu hafa verið hafist handa
Urn að stofna prófessorsembætti í íslenskri sögu, bókmenntum og fornfræði
1,1 minningar um Árna Magnússon og kenna það við hann. Eðli málsins sam-