Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2007, Side 84

Andvari - 01.01.2007, Side 84
82 BIRNA BJARNADÓTTIR ANDVARI 1800. Það geymir æði margt af því sem skiptir máli, spyrji fólk um listrænar og fagurfræðilegar rætur rómantísku stefnunnar í Þýskalandi. I vinahópnum var óvenju víðlesið og skapandi fólk: August Wilhelm var textafræðingur og skrifaði einnig bókmenntasögu, bróðir hans Friedrich var skáldlegur kenningasmiður, þýðandi og heimspekingur, Caroline var rithöfundur og salónessa, Dorothea sömuleiðis, Ludwig Tieck skrifaði ævintýralegar sögur, samdi leikrit og var afbragðs þýðandi. Ekki má gleyma Novalis, skáldinu í hópnum og besta vini Tiecks.13 Sé blaðað í tímaritinu Athendum má koma auga á textabrot eins og þessi: „Andinn er jafnfeigur, hvort sem hann býr yfir kerfi eða er kerfislaus. A end- anum verður andinn að sameina hvort tveggja“.14 „Það sem gerist í skáldskap, gerist aldrei eða ævinlega. Annars er það enginn skáldskapur. Enginn skyldi trúa því að hann gerist í raun.“15 Textabrotin gefa til kynna hugmyndir, sem segja má lýsandi fyrir hópinn. Hið sama gildir um næsta textabrot: Rómantísk ljóðlist er framsýn og algild. Markmið hennar er ekki aðeins að sameina allar sundraðar bókmenntategundir og koma ljóðlistinni í snertingu við heimspeki og mælskulist. Hún vill í senn einnig blanda saman, bræða saman ljóðlist og prósa, snilligáfu og gagnrýni, list og náttúru, gera ljóðlistina lifandi og félagslynda, og lífið og samfélagið ljóðrænt, gera kersknina að ljóði og fylla form listanna með efni af öllu tagi, seðja þau og lífga þau upp með sveiflum kímninnar. ... Aðeins hún getur líkt og hið epíska verk verið spegill heimsins í kring, orðið mynd eigin samtíðar. En samt getur hún einnig helst svifið mitt á milli þess sem sýnt er og sýna á, frjáls undan öllum áþreifanlegum og huglægum hagsmunum, á vængjum ljóðrænnar íhugunar og fjölgað sér líkt og í endalausri röð af speglum; já, það er hennar eiginlega eðli, að hún er að verða að eilífu og aldrei orðin: engin kenning getur skýrt hana að fullu og einungis spámannleg gagnrýni vogar sér að skilgreina hugsjónir hennar. Hún ein er óendanleg, líkt og hún ein er frjáls og viðurkennir sitt fyrsta lögmál í því að vilji skáldsins viðurkenni engin lögmál.16 Hér má lesa tiltekna kröfu um einveldi skáldskapar en breski samtímaheimspek- ingurinn Simon Critchley hefur skrifað um þá sannfæringu Jena-hópsins að list- in ein geti hjálpað fólki frammi fyrir ringulreið nútímans, að listin og þá skáld- skapur - í formi skáldskapar í eilífri þróun - geti orðið að einskonar guðspjalli mennsku og menningar. Þessi draumur rættist ekki og enginn úr Jena-hópnum skrifaði skáldverk sem yfirvann vaxandi tómhyggju þeirra tíma. Rómantíkin hefur einnig verið kölluð list án verka.17 Krafan um einveldi fagurfræðinnar er einnig skyld pólitísku sviði veruleikans en í því efni var fall hópsins ekki síður hátt, eins og minnst hefur verið á. Það breytir því ekki að túlka má veikleika rómantíkur sem styrk hennar og ekki er víst að tími rómantíkurinnar heyri endilega fortíðinni til. Uppi eru hugmyndir um að samtíminn sé ekki með öllu gersneyddur rýminu sem rómantíkin skóp og skildi eftir sig, að reynslan af róm- antíkinni sé - upp að vissu marki - reynsla sem fólk tekur enn þátt í.18
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.