Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2007, Síða 128

Andvari - 01.01.2007, Síða 128
126 ÞÓRIR ÓSKARSSON ANDVARI „Den islandske Literaturs Charakteristik“ (1846).3 Af skrifum um erlent efni ber aftur á móti hæst áðurnefnda meistaraprófsritgerð Om Lord Byron og 165 blaðsíðna samkeppnisritgerð við Hafnarháskóla, Om den nyfranske Poesi frá 1841, þar sem leitast er við að svara spurningunni hvort skáldskaparsmekk og tilfinningu hafi farið fram eða aftur í Frakklandi á síðustu árum og hver sé ástæða þess. Fyrir þá ritgerð hlaut Grímur önnur verðlaun (,,accessit“) og var hún gefin út 1843 ásamt 67 blaðsíðna formála höfundar.4 Þá minnast marg- ir vinsamlegs ritdóms Gríms um H.C. Andersens samlede Skrifter (1855)5 sem ævintýraskáldið taldi sjálft „den fprste ubetinget [anjerkjendende Dom her i Danmark over mig som Digter [...] smukt skrevet, dertil dygtigt, med Kjendskab og Kjærlighed. Alle som have læst den synes særdeles om den“.6 Bókmenntaástundun Gríms vakti talsverða eftirtekt danskra menntamanna, þótt hrifning þeirra væri að vísu ekki óskipt, og veitti konungur honum styrk til tveggja ára utanlandsferðar að námi loknu til að efla kunnáttu sína í þýsku, frönsku og ensku. Meðal helstu meðmælenda Gríms um þann styrk var kenn- ari hans í fagurfræði, Adam Oehlenschláger, skáld og prófessor.7 Þetta sýnir að málsmetandi menn viðurkenndu ekki aðeins Grím fyrir verk sín heldur voru líka tilbúnir að veðja á hann. Telja má einnig trúlegt að skrif Gríms hafi stuðlað að skjótum frama hans innan dönsku utanríkisþjónustunnar á 6. áratugnum. A þessum tíma var að minnsta kosti fremur algengt að ungir og efnilegir menn kæmu sér á framfæri með því að „drabba í skáldskap“, svo að vitnað sé í lýsingu Ingibjargar Jónsdóttur, móður Gríms, þegar hún frétti að hann væri orðinn fráhverfur lögvísi en héldi sig helst til fagurbókmennta.8 Ahugi Gríms á fögrum fræðum fór ekki heldur framhjá ungum íslenskum skáldum og menntamönnum á borð við Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826-1907) og Gísla Brynjúlfsson (1827-1888), auk þess sem Grímur hafði með samneyti sínu við þá veruleg áhrif á þekkingu þeirra á evrópskum skáld- skap og heimspeki og afstöðu þeirra til þessara mennta. Benedikt Gröndal getur þess t.d. í sjálfsævisögu sinni, Dœgradvöl, að Grímur hafi í stuttu fríi á Islandi veturinn 1843-1844 kennt sér og öðrum skólapiltum í Bessastaðaskóla frönsku og frætt þá um enskar, franskar og þýskar samtímabókmenntir og heimspeki Hegels, Rasmus Nielsens og Spren Kierkegaards. Þá hafi hann gefið sumum þeirra rit sitt um franskan nútímaskáldskap: Hann var þá hrifinn af frönskum skáldskap - mig minnir hann væri þá nýbúinn að rita „Om den nyfranske Poesi“, sem hann fékk „accessit" fyrir, að minnsta kosti gaf hann mér og fleirum bókina, en annars var Byron það skáld, sem Grímur lagði sig mest eftir, og ritaði hann ágæta bók um hann, og hefur sú bók sjálfsagt tekið flestu fram, sem í þá daga var ritað á dönsku um skáldskap.9 í Dœgradvöl kemur sömuleiðis fram að Gröndal - sem yfirleitt var heldur spar á lofsyrði þegar innlendir samferðamenn hans áttu í hlut - leit engum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.