Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2007, Page 178

Andvari - 01.01.2007, Page 178
176 HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON ANDVARI afköst.23 Þetta breyttist í lok átjándu aldar, þegar dönsk stjórnvöld urðu fyrir áhrifum af boðskap Adams Smiths og lögðu niður einokunarverslunina. A nítjándu öld urðu nokkrar framfarir í krafti atvinnufrelsis, þótt fjöldi manns flýði örbirgð vestur um haf. Fjármagn myndaðist smám saman í landinu og leitaði í ábatasama útgerð, og fólk flykktist til Reykjavíkur og annarra kaup- staða. íslendingar voru þó aðeins hálfdrættingar á við Dani í tekjum allt til 1940, þegar Bretar hernámu landið og eftirspurn jókst skyndilega eftir vöru og þjónustu Islendinga. Þá skutust Islendingar upp fyrir Dani í tekjum.24 Eftir seinni heimsstyrjöld gekk á ýmsu. íslendingum tókst að halda góðum tekjum þrátt fyrir takmarkað atvinnufrelsi, vegna þess að þeir græddu ekki síður á Kalda stríðinu frá 1948 en hinu heita áður, jafnframt því sem þeir ráku útlend- inga af íslandsmiðum í fjórum þorskastríðum. Þeir jusu upp síld á sjöunda áratug, svo að stofninn hrundi, og þorski á hinum áttunda, þótt þeir lærðu af reynslunni og takmörkuðu sóknina. Atvinnulíf var mjög óstöðugt á þessum tíma. Verkföll voru tíð og jafnan samið eftir þau um óraunhæfar launahækk- anir, en verðbólga, verðlækkun peninga, notuð til að jafna metin. Hún var miklu meiri en í grannríkjunum. Eftir seinni heimsstyrjöld var atvinnuleysi þó sjaldan verulegt. Þjóðin var ung og hraust og þurfti ekki á víðtækri vel- ferðaraðstoð að halda. Lífeyrissjóðir voru ekki í höndum opinberra aðila, eins og annars staðar á Norðurlöndum, og margvíslegar bætur lægri, enda jafnan tekjutengdar.25 Sá hugsunarháttur var algengur, að fslendingar byggju í nær ónumdu landi og þyrftu á öllum kröftum að halda. Stjórnvöld skömmtuðu fjármagn og studdu af alefli margvíslegar framkvæmdir, stundum vanhugs- aðar. í lok níunda áratugar virtist íslenskt atvinnulíf staðnað, og var því jafnvel spáð, að ísland yrði aftur orðið eitt fátækasta land Vestur-Evrópu um 2000. En stefnunni var breytt 1991, þegar hagkerfið var opnað og atvinnufrelsi aukið. Sem fyrr segir er ísland nú í hópi þeirra tíu ríkja í heimi, sem búa við víðtækast atvinnufrelsi. Opinberir sjóðir voru lagðir niður eða reglur um þá hertar. Vegna peningalegs aðhalds hjaðnaði verðbólga niður í það, sem hún er í grannríkjunum. Halla á fjárlögum var snúið í afgang, sem notaður var til að lækka skuldir ríkisins. Ymis fyrirtæki ríkisins voru seld fyrir um 150 milljarða króna og andvirðið notað til að lækka skuldir ríkisins og koma lagi á lífeyrissjóð opinberra starfsmanna, jafnframt því sem almennar reglur um lífeyrissparnað voru rýmkaðar. Nú geta menn sparað til ellinnar í fleira en steinsteypu og málverkum. Útgerðarfyrirtækjum var tryggður afnotaréttur af fiskimiðum, svo að þau gátu einbeitt sér að arðbærum rekstri, en ekki hlustað á nokkra menntamenn, sem vildu taka upp auðlindaskatt að fornri fyrirmynd (þótt hugmyndin væri ekki að þessu sinni, að hann rynni til land- búnaðar, heldur í niðurgreiðslu margvíslegrar þjónustu við menntamenn).26 Skattar voru lækkaðir: Aðstöðugjald á fyrirtæki var fellt niður og tekjuskattur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.