Andvari - 01.01.2008, Blaðsíða 37
andvari
BJARNI BJARNASON
35
að hafa slíkan skóla við hlið héraðsskólans vegna samgangs kynjanna.
Um þetta fórust Bjarna svo orð:
Það leiðir af sjálfu sér að aldursskeiðið frá 16-20 ára hefur oft óróa í för með
sér hjá mörgum einstaklingum. En ég veit ekki hvar slíkar kenndir eru undir
öruggari aga heldur en einmitt undir handleiðslu góðra skóla.4-
Bjarni nefndi í sömu þingræðu allt það hagræði sem fylgdi því að skólar
hefðu sameiginleg leikfimihús, sundlaug og kennslukrafta. Leynir sér
ekki að þar er Laugarvatn í huga hans og fjölbreytt kennslu- og uppeldis-
starf í skjóli héraðsskólans. Um það verður rætt í næsta kafla.
VII. Afkvœmi Héraðsskólans á Laugarvatni
Stundum hefur verið tekið svo til orða að aðrir skólar á Laugarvatni en
héraðsskólinn hafi æxlast af honum líkt og afkvæmi foreldris. Þó að
sú líking gefi ófullkomna mynd af því sem raunverulega gerðist verður
ekki um það deilt að Bjarni skólastjóri hafði frumkvæði og forystu í
þeirri skólaþróun á Laugarvatni sem leiddi til stofnunar þriggja nýrra
skóla, þ.e. íþróttakennaraskóla íslands, Hússtjórnarskóla Suðurlands og
Menntaskólans að Laugarvatni. Ólafur Briem, kennari á Laugarvatni
hátt á fimmta áratug og náinn samstarfsmaður Bjarna, lét svo um mælt
á áttræðisafmæli hans að þeir væru allir óumdeilanlega verk hans. Og
hann bætti við orðrétt:
Ókunnugir kynnu að halda, að það hafi verið bægslagangur á hinum stórbrotna
héraðshöfðingja, þegar hann var að koma þessum skólum á fót. En það var öðru
nær. Starf þeirra allra hófst í kyrrð og ró innan vébanda Laugarvatnsskólans
undir styrkri og góðviljaðri handleiðslu Bjarna Bjarnasonar. En hann skilaði
þeim af sér hverjum fyrir sig í hendur alþjóðar, þegar hann treysti þeim til að
standa á eigin fótum. Langt er samt frá því, að hann hafi um leið sleppt hendinni
af þessum óskabörnum sínum. Hann leiddi þau öll fyrstu sporin og veitti þeim
alla þá aðstoð, sem hann gat í té látið, svo að þau næðu að þroskast og dafna.4i
Fullyrða má að Ólafur talar hér fyrir munn þeirra sem best fylgdust
með myndun hinna nýju skóla. Bjarni gerði sjálfur rækilega grein fyrir
uPpruna þeirra í ritinu Laugarvatnsskóli þrítugur, af hógværð um sinn
hlut en af þekkingu umfram alla aðra sem gefur frásögn hans óvið-
jafnanlegt heimildargildi. Athyglisvert er á hve ólíkum sviðum skól-