Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2008, Blaðsíða 12

Andvari - 01.01.2008, Blaðsíða 12
10 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI einum manni en nokkurt ljóð fær tjáð. Hið sannasta kvæði er aldrei annað en hálfkveðin vísa, miðað við allt sem inni fyrir býr, einn tónn af mörgum. Hann getur verið hinn ómríkasti, tærasti, fyllsti, og hann getur túlkað það frábærlega vel, sem vill brjótast fram á stundu sköpunarinnar, en hann nær því sjaldan til fulls. Það er löngum eitthvað handan orðanna, handan formsins, sem andann grunar, en nær ekki tökum á, eitthvað sem hugur skynjar, en fær ekki túlkað. Og stundum dyljast menn í orðum sínum en opinbera ekki.“ (Um ársins hring, 1964, 254-55) Næmleiki Sigurbjörns Einarssonar á skáldið Stein leiðir hugann að því að hann var sjálfur skáld. A seinni hluta ævinnar kom hann fram sem sálma- skáld og á margt í núgildandi sálmabók, einkum þýðingar. Einnig er til safn af sálmum hans og ljóðum, útgefið 1996. Má telja Sigurbjörn fremsta sálma- skáld með íslendingum eftir daga Valdimars Briem. Og hann þýddi með miklum ágætum Ijóð eftir sænska skáldið Hjalmar Gullberg (nokkur komu í Andvara 1991). Um þýðingar Sigurbjörns sagði Olafur Jóhann Sigurðsson að honum hefði einum manna tekist að þýða ljóð hins sænska skálds á íslensku án þess að það glataði hinum sérstæða tóni sínum, alvöru sem aldrei er of hátíðleg og seiðandi mystik. (Bolli Gústavsson: Litið út um Ijóra, 1985, 109-10). Þetta eru stór orð ef litið er til þess að ekki ómerkari ljóðaþýðandi en Magnús Ásgeirsson lagði sérstaka rækt við að þýða Gullberg. * Þegar maður eins og Sigurbjörn Einarsson er kvaddur er margs að minnast fyrir hvern og einn og má ef til vill ljúka þessum pistli á persónulegum vitn- isburði. Sá sem þetta ritar er einn af fjölmörgum sem Sigurbjörn hreif ungan. Eg var tólf ára sveinn norður á Dalvík þegar frá því var skýrt í fréttum útvarps í ársbyrjun 1959 að nú ætti að kjósa nýjan biskup. Við ræddum þetta heima og fólk tilnefndi ýmsa kunna klerka sem til greina kæmu að taka við þessu virðulega embætti. Af einhverjum ástæðum nefndi ég Sigurbjörn Einarsson. Ekki er mér vel ljóst hvers vegna hann var mér efstur í huga. Þá hafði ég aldrei séð manninn og vissi sama og ekkert um hann, því síður um skoðanir manna í klerkastétt. En einhvern veginn hafa orð Sigurbjörns í útvarpinu náð til mín, eða einhver ummæli í blöðum, og sannfært mig um að þarna færi fremsti prestur í landinu. Sú sannfæring haggaðist aldrei síðan. Árið sem ég var fermdur bar hann fyrst fyrir augu mín þegar hann kom til að vígja nýju kirkjuna okkar á Dalvík og ég var viðstaddur þá athöfn. Næst sá ég Sigurbjörn og heyrði í þriðja bekk Menntaskólans á Akureyri, - hann kom þangað og talaði á Sal. Mátti heyra saumnál detta þegar biskupinn flutti mál sitt fyrir nemendum, sem voru þó margir lítt ginnkeyptir fyrir krist- indómsboðun almennt. Síðan fór það svo að ég sat mig ekki úr færi að hlýða á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.