Andvari - 01.01.2008, Blaðsíða 57
andvari
BJARNI BJARNASON
55
hjá Mjólkurbúi Flóamanna og kom í ljós gerlafjöldi sem skipaði engu
af sýninu í fyrsta flokk en nær öllu í þriðja og fjórða flokk og þar með
óhaefu til drykkjar. í framhaldi af þessu hætti hið sameiginlega mötu-
neyti héraðsskólans, menntaskólans og íþróttakennaraskólans með öllu
að kaupa ógerilsneydda mjólk og fékk eftir það senda neyslumjólk frá
Mjólkurbúi Flóamanna. Húsmæðraskólinn hélt áfram að kaupa mjólk
af búinu, sem nú varð eins og önnur nautgripabýli að selja mjólk sína
til mjólkurbúsins.94
Þessi niðurstaða var Bjarna mikið áfall. Hjarðfjósið nýja, framfara-
tákn og fyrirmynd annarra, hafði hlotið falleinkunn. Hann gagnrýndi
að vísu harðlega aðferðina sem höfð hafði verið við sýnistöku og rann-
sókn, sýni hefði ekki verið tekið beint úr brúsum búsins eins og þeir
komu úr höndum mjaltamanna heldur tekin sú áhætta að treysta sýnis-
hornum sem munu hafa komið frá bryta og héraðslækni. Arið sem
óánægjan kom upp, þ.e. 1959, hefði búið sent til mjólkurbúsins (væntan-
lega utan skólatíma) 82% 1. flokks mjólk. í bréfi Bjarna til skólastjór-
anna á Laugarvatni frá 24. febrúar 1962 er mjólkurmálið rakið frá hans
sjónarmiði. Það er aðalheimild mín um það sem hér fer á eftir.95
Bjarni virðist ekki hafa getað sætt sig við þau málalok að verða eins
°g flestir aðrir sunnlenskir bændur að senda alla mjólk búsins í Mjólk-
Urbú Flóamanna á Selfossi og síðan yrði álíka magn af gerilsneyddri
tnjólk flutt þaðan að Laugarvatni. Hann vildi sýna mjólkurbúinu að hann
v^ri ekki upp á það kominn, hann skyldi sjálfur koma sér upp búnaði
Ó1 gerilsneyðingar og fullnægja þannig gæðakröfum mötuneytanna og
annarra íbúa Laugarvatns. Með þessu hugðist hann „koma á gagnlegu
búskaparnýmæli fyrir skólasetrið“.96 Vígreifur sem fyrr fékk hann for-
stjóra Mjólkursamsölu Reykjavíkur, Stefán Björnsson, til liðs við sig.
Bann útvegaði Bjarna að hans sögn tilboð í 400—500 lítra gerilsneyð-
ingartæki frá Danmörku og var reiðubúinn að koma til Laugarvatns og
gefa ráð um notkun tækisins og allan búnað svo að hreinlætiskröfum
yrði fullnægt. Fyrst vildi Bjarni þó tryggja að mötuneytið keypti þá sína
ynjólk og leitaði því eftir viðbrögðum skólastjóranna með viðræðum í
júlí 1961. Þeir leituðu álits landlæknis sem svaraði með bréfi 22. ágúst
°g tók þar jákvætt í þá hugmynd að gerilsneyða mjólkina á framleiðslu-
stað að ströngum skilyrðum uppfylltum. Hinn 7. október leitaði Bjarni
svo bréflega eftir svari skólastjóraráðs skólanna á Laugarvatni. Það bréf
asamt bréfi landlæknis var rætt á fundi ráðsins 12. október og svar-
bréf sent „til Laugarvatnsbúsins“.97 í því er ítrekað að ánægja sé með