Menntamál - 01.04.1967, Blaðsíða 37
MENNTAMÁL
31
Hugsum okkur lágstéttardreng með móður sinni í strætis-
vagni. Drengurinn ærslast og hoppar til og frá í vagninum.
Móðirin segir: „Seztu og vertu góður“. Drengurinn segir:
„Af hverju?“ Móðirin: „Af því að ég er búin að segja þér
að setjast í sætið“. Drengur sezt ekki enn og heldur áfrarn
að ærslast, og móðirin segir enn einu sinni: „Ég var búin að
segja þér að setjast! “ Og spyrji barnið enn einu sinni: „af
hverju?“ þá er síðasta svarið stundum skammir eða jafn-
vel löðrungur. Skýringarnar á því, sem barnið á að gera,
felast í endurteknum fyrirmælunum sjálfum. llarnið á að
gera eitthvað, af því að það á að gera það: Boð og bönn eru
ekki skýrð. Veröldin og reglur hennar eru eins konar hring-
ur. Hvað hendir miðstéttarbörn við sömu skilyrði? Þau
ærslast alveg eins og lágstéttarbörn, og móðirin segir:
„Seztu í sætið þitt“ eins og fyrr. Síðan spyr barnið: „Af
liverju á ég að setjast?“ En þá segir móðirin ekki: „Af því
að þú átt að setjast“, heldur gefur skýringu: „Af því að þú
gætir dottið og meitt þig.“ Barnið gegnir samt ekki enn,
og þá spyr móðirin: „Sagði ég þér ekki að setjast?“, og snýr
setningunni npp í spurningu. Barnið spyr enn eins og lág-
stéttarbarnið: „Af hverju?“ „Þú truflar alla, sem sitja í
kring." Þetta er önnur skýring en fyrr, og ef barnið sezt ekki
enn, getur leikurinn enn haldið áfram. Þar til kemur að
löðrungi eða öðru því, er bindur enda á þessi orðaskipti,
liafa orðið ýmis stig á skýringum milli samskiptaaðila, og
barnið lærir, að það er hægt að skýra út athafnir, boð og
bönn, að til er samband milli orsaka og afleiðinga þess,
sem gerist. Ef löðrungurinn kemur að lokum, þá er það
vegna þess, að hið augljósa samband milli orsaka og afleið-
inga hefur ekki orðið til þess að sannfæra barnið til að taka
upp annað atferli. Það stendur þá í ákveðnu sambandi við
orsakaskýringarnar og viðbrögð barnsins gagnvart þessnm
orsakaskýringum. Hér er ólíku saman að jafna. Ef veröldin
er liringlaga rás, þar sem skýringarnar eru staðhæfingar og
staðhæfingar skýringar, er torleiði fyrir barnið í skólanum