Menntamál - 01.04.1967, Page 53
MENNTAMÁL
47
hlutfallinu 3:5 og þannig mætti lengi telja. Öfug
hlutföll eru sjaldgæfari, en skjóta þó upp kolli stöku
sinnum: Verk tekur því skemmri tíma senr fleiri vinna
að því, kostnaður verður þeim mun minni á hvern
einstakling sem hann skiptist á fleiri. Þetta eru allt
dæmi um ven/.l og þau eru býsna lík hvert öðru, eru
öll valin af þröngu sviði. Þegar tiltekið er að söluverð
sé 10% hærra en kaupverð, er jafnframt komið á
einkvœmu sambandi milli tveggja mengja:
Til hvers kaupverðs svarar eitt söluverð og öfugt. Hlut-
föll, rétt og öfug, hafa verið flestum viðfangsefnum
vinsælli í reikningsbókum. Nemendum hefur verið
fengin í hendur fljótvirk vél þar sem þríliðan er, til
þess að reikna þann íbúa í öðru menginu, er svarar
til ákveðins íbúa í hinu.
Eins og dr. Halldór Elíasson benti á fyrir skömmu
í grein hér í tímaritinu, getur sú einhliða og vél-
ræna þjálfun, sem nemendur hafa hlotið í þríliðu, hæg-
lega orðið til þess að þeir gangi að því sem vísum hlut
að hún eigi ávallt og alls staðar við. Ef venzl tveggja