Menntamál - 01.04.1967, Page 56
50
MENNTAMÁL
geta verið gegnvirk. Ef Árni er stærri en Bjarni og
Bjarni aftur stærri en Einar, er Árni áreiðanlega
stærri en Einar. Ekki hafa öll venzl þennan eiginleika,
t. d. ekki venzlin „er faðir“. Ef Árni er faðir Bjarna og
Bjarni aftur faðir F.inars, er Árni örugglega ekki faðir
Einars.
Þriðja lýsingarorðið er menn seilast til að nota um
venzl er sjálfhverfur. Ef hver einstaklingur er venzl-
aður sjálfum sér á þann hátt sem venzlin greina, eru
þau kölluð sjálfhverf. Dæmi um sjálfhverf venzl er
„jafnstór og“: hver einstaklingur er jafnstór sjálfum
sér. Ekkert þeirra þriggja venzla, er áður voru nefnd,
er sjálfhverft.
Og nú geta menn sjálfir athugað nokkur dæmi til
viðbótar, kannað hvort þau eru venzl og hvort eitt eða
fleiri þessara þriggja lýsingarorða eiga við þau:
„er ástfanginn af“
„er giftur“
„er afkomandi"
„er austar en“
„er austar en“
„er austar en“
„er hornrétt. á“
„á jafnmargar kindur og“
„er brautskráður sama ár
úr Kennaraskólanum og“
(í mengi manna)
(í mengi manna)
(í mengi manna)
(í nrengi staða á íslandi)
(í mengi staða á jörðunni)
(í mengi staða á jörðunni,
að heimskautunum und-
anskildum)
(í mengi lína í fleti)
(í mengi sauðfjáreigenda)
(í mengi kennara)
— Þeir sem ekki ern búnir að fá nóg, geta bætt við
dæmum að vild.
Venzl sem eru allt í senn: samhverf, sjálfhverf og
gegnvirk eru kölluð jafngildisvenzl og höfð í talsverð-
um hávegum.
j.