Menntamál - 01.04.1967, Side 78
72
MENNTAMÁL
unum. Tilraun þessi er gerð af vanefnum, en reynsla sú,
sem fæst af henni, getur þó komið í góðar þarfir, þegar eðl-
isfræðikennslan verður endurskipulögð.
Ég tel að miða beri hið nýja námsefni við a. m. k.
tveggja ára nám, því mikiil meirihluti nemenda er einn
vetur fram yfir skylduna. Verði lagt niður J^að undarlega
skipulag, að í þriðja bekk gagnfræðaskólanna verði byrjað
aftur að nýju á frumatriðum eðlisfræðinnar.
Ég tel, að væri nægilegt fé fyrir hendi, væri ekkert jrví
til fyrirstöðu, að hægt yrði að ná saman slíkum hóp, sem
að framan greinir, og fullvinna endursköpun námsefnisins
á einu til tveimur árum. Jafnframt þessu yrði eðlilega að
gera ráðstafanir til að tryggja, að hægt yrði að kenna hið
nýja námsefni á þann hátt, sem til er ætlazt, bæði með öfl-
un nauðsynlegra tækja og fræðslustarfsemi fyrir þá kenn-
ara, sem skulu kenna þetta nýja efni.
Hversu mikið mun það kosta að endursemja námsefni
eðlisfræðinnar? Ég vil frekar spyrja: Hversu mikið má það
kosta? Eða: Hvers virði er endurbætt námsefni? Þótt eðlis-
fræðikennslan sé ekki mikil árlega, kostar hún j)ó árlega lið-
lega fjórar milljónir króna í 2. og 3. bekk gagnfræðaskólanna.
Ég tel, að það væri vægilega metið, ef áætlað væri að
nemendurnir hefðu hálft gagn af kennslunni miðað við
j)að, að hún væri í svipuðu horfi og Jaar sem vel gerist ann-
ars staðar. Mér finnst Jaess vegna ekki til of mikils ætlazt,
að við verjum um fimm milljónum króna í alvarlega til-
raun til að færa eðlisfræðikennsluna í viðunandi horf í ís-
lenzkum gagnfræðaskólum.
S. Hvernig má fá hœfa kennara?
Annar meginvandi eðlisfræðikennslunnar er kennara-
skorturinn, og er Jíessi þáttur vandans öllu erfiðari viður-
eignar. Svo sem fyrr hefur verið sagt, er BA prófs krafizt af
eðlisfræðikennurum, en þar sem sáralítið framboð er af
kennaraefnum með því prófi, hefur ekki verið hjá því kom-