Menntamál - 01.04.1967, Side 89
MENNTAMÁL
83
bókum. Er hér átt við málnotkun, stíl og gerð verkanna
yfirleitt. Nánar greint gæti tilefni gefizt til að fjalla um
orðaval, orðaröð og blæbrigði málsins, setningaskipun,
notkun hrynjandi, rírns, stuðla, líkinga, mynda, tákna,
andstæðna og endurtekninga, byggingu verksins (komposi-
tion), stígandi, spennu o. s. frv. í rauninni er vinna með
Jressi atriði ekki síður mikilvæg en orðskýringar, en hefur
Jró lítt eða ekki verið sinnt við bókmenntalestur í skólum
okkar, ef bragfræðin er undanskilin. Ef nemandinn hefur
(öðlazt skilning á þeim einu sinni, geta Jrau orðið leiðarljós,
sem hægt er að grípa til, hvenær sem er. Ef lesarinn getur
beitt Jrví leiðarljósi af kunnáttu, verður leiðin greiðari að
fullum skilningi og ríkulegri reynslu af kynnum við verkið,
og honum hefur Jrá miðað áleiðis að ])ví marki að kunna
að meta góðar bókmenntir.
Víkjum ])á næst að ])ví markmiði bókmenntalestrar að
auka skilning lesandans á sjálfum sér og mannlífinu yfir-
leitt. Ekkert verk getur sagt lesandanum meira en hann
getur tekið á móti og móttökuskilyrði lesandans ráðast af
aldri hans eða öllu heldur Jnoska. Fyrir börnum er heim-
urinn ungur og nýr, og Jiau hafa ríka þörf fyrir að ná vax-
andi tökum á honum. Börn eru forvitnari, nærnari á sinn
hátt og ekki eins gagnrýnin og fullorðnir. Málið og lestrar-
kunnáttan opna leið fyrir skáldskapinn, sem getur orðið
barninu mikilvægur vegna þeirra viðkennsla, svara og iirv-
unar fyrir ímyndunaraflið, sem ])ar má finna. Imyndunar-
aflið er svo sterkt, að hvers konar nýtt lesefni getur orðið
barninu nægilegt viðfangsefni, en jafn ljóst er, að gæði
efnisins skipta miklu máli. Á unglingsárum breytast viðhorf
og móttcikuskilyrðin um leið. Hin ótamda breidd í næmi
barnsins þrengist smám saman, þegar einstaklingurinn að-
lagar sig venjum og háttum í þjóðfélaginu, eignast sérstaka
lífsskoðun og smekk. En um leið verður meiri dýpt og
sveifla í þeirri reynslu, sem nú verður í þrengri hring.
Unglingsárin frá fermingu og fram undir tvítugt eru ólgu