Menntamál - 01.04.1967, Side 101
MENNTAMÁL
95
En þrátt fyrir þetta skeður það merkilega, að viðleitni til
að eíla skólakerfið ber samt sem áður árangur, en það var
fyrir tilstilli áætlana, sem gerðar voru í félags- og efnahags-
málum.
Frakkar hafa allsherjarskipulagsráð (Conseil général du
plan). Þetta allsherjarskipulagsráð gerði áætlanir í fjórum
áföngum. í l'yrsta áfanganum var áætlun um grundvallar-
skipulag í efnahagsmálum þjóðarbúsins. í þeirri áætlun var
ekkert minnzt á menntunarþörfina. í öðrum áfanga varð
að taka áætlanirnar fyrir aftur og endurbæta og samræma
suma hluta þeirra, af því að aðaláætlanirnar voru samdar
hver í sínu lagi. Nú var leitast við að samræma aukninguna
á ýmsum sviðurn efnahags- og atvinnulífsins, eða með ()ðr-
um orðum reynt að fá samspil í þjóðarbúskapinn (économie
concertée). í þessari nýju gerð áætlunarinnar sést, að skil-
yrðið fyrir samræmdum efnahags- og félagslegum vexti er
það, að menntakerfið sé Ityggt upp eftir ákveðnum reglum.
Önnur áætlunin tókst ekki sem skyldi. Þriðji áfangi áætlan-
anna beindist því aðallega að því að treysta efnahagsástand-
ið. Fjórði áfanginn hafði gagngerðar breytingar í för með
sér, og Frakkland var tilneytt til að ganga í Efnahagsbanda-
lag Evrópu, eða að minnsta kosti gera tilraunir í þá átt. Inn-
gangan í bandalagið hafði það m. a. í för með sér, að Frakk-
land varð að gera menntaáætlanir sínar með tilliti til sam-
bandsins við grannþjóðirnar. Efnahagsskipulagsráðið áætl-
aði þarfir vinnumarkaðsins frarn til ársins 1980 og dró af því
ályktanir, hvaða áhrif það hefði á uppbyggingu mennta-
kerfisins. Áætlun um vinnuaflsþörfina var gerð fyrir þrjá
aðalþætti atvinnulífsins: landbúnað, iðnað og þjónustustörf.
Þá varð augljóst, hvaða ráðstafanir þyrfti að gera í mennta-
málunum, til þess að unnt væri að sjá atvinnuvegunum fyrir
nægilega miklum og góðum starfskröftum. Var nú orðið
ljóst, að gagngerðar breytingar á skólakerfinu voru óum-
flýjanlegar.
Athyglisverðasta atriðið við áætlanir franska allsherjar-