Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1931, Blaðsíða 115
113
frændfólksins heima á nesinu. Eitt er víst, að árið 1878
fluttust hingað af Langanesi þessir, sem nú verða nefndir:
Aðalmundur Guðmundsson frá Skálum. Ásdís Guðmunds-
dóttir frá Sköruvík, systir ólafs, þá heitmey Aðalmundar.
Jón Sigurðsson frá Kumblavík. Margrét kona hans, Guð-
mundsdóttir frá Sköruvík, systir Ólafs og Ásdísar, og Jó-
hannes Jónsson, móðurbróðir Aðalmundar. Þessi hópur stað-
næmdist í Toronto í Ontario, og fékk þar vinnu það sem
eftir var þess sumars við járnbrautarstörf. Kaupgjaldið
var einn dollar á dag fyrir tíu klukkustunda vinnu; af þessu
kaupgjaldi þurftu þeir að fæða sig og klæða. Stjórnin
veitti þeim þau hlunnindi, að ljá þeim matreiðsluáhöld. —
Þessi hópur dvaldi í Ontario um veturinn 1878—79; en með
vorinu hélt það á fund áðurnefnds ölafs, sem þá vann á
Grandy Farm- Sumarið 1879 fluttust vestur um haf úr sömu
sveit nokkrir af þessu frændliði, og stefndu þangað sem
hinir fyrtöldu höfðu dvalarstað. Þeir voru þessir: Aðaljón
Guðmundsson frá Sköruvík og Ólöf Jónsdóttir kona hans.
(Sjá þátt hans í Almanaki ð. S. Th. fyrir árið 1930). Sig-
ur'our Jónsson bóndi frá Kumblavík og Margrét kona hans
og tveir synir þeirra, Benjamín og Stefán. Þetta fólk komst
til Grandy Farm, þangað sem skyldmenni þeirra unnu, og
fengu karlmennárnir vinnu þar við uppskeru það sem eftir
var sumarsins. Um haustið, þegar vinnu var lokið á nefnd-
um búgarði, fluttist alt þetta fólk, sem nú hefir verið nefnt,
til bæjarins Moorehead í Minnesota, sem þá var lítið þorp
á austurbakka Rauðár (Red River), og bjó þar um vetur-
inn 1879—80-
Um haustið 1879 lögðu þeir Ólafur og Aðalmundur af
stað fótgangandi í laiídskoðunarferð norður í Islendinga-
bygðina, sem þá var að myndast í Norður Dakota. Þeir
fóru fyrst til Pembina; en þaðan gengu þeir vestur að hæð-
um þeim, sem nefndar eru Pembinafjöll og komu þar sem
Þorláksfólkið (Stórutjarnarfólkið) var að byggja fyrstu
heimili sín. Þaðan héldu þeir suður með áðurnefndum fjöll-
um, þangað sem þorpið Garðar er nú; þá var það kallað
Park. Þeir skoðuðu landið víða, bæði kringum Mountain,
sem þá var kallað Vík og þaðan suður til Park. En hvern-