Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Page 51
ALMANAK 1944
51
Þau eignuðust tvær dætur, er heita Anna Ruth og
Elizabeth Jo, efnilegar stúlkur eins og þær eiga ætt til.
Fór frú Jórunn því eigi varhluta af þeim skyldum, sem
ástrík og umhyggjusöm móðir leggur sér fúslega á herðar
börnum sínum til umönnunar og ánægjuauka, enda var
hún hin skylduræknasta innan heimilisins eigi síður en
utan. Þeir, eins og sá, er þetta ritar, sem nutu gestvináttu
þeirra hjónanna, geta um það borið, hver myndarbragur
var þar á öllu og gestrisnin hlýleg að góðum íslenzkum
sið. Hitt vita allir, að það er jafnan húsfreyjan, sem setur
svip sinn á heimilið.
Annars einkenndi það frú Jórunni um annað fram,
hve víðtæk áhugaefni hún átti og þar sýndi sig einnig
fjölhæfni hennar. Hún tók þátt í ýmsum íþróttum og
skaraði þar fram úr öðrum, og á margt annað lagði hún
gjörva hönd. En langmest kvað samt að þátttöku hennar
í félagsmálum, og kom sér það þá ágætlega, eigi síður
en í lögfræðingsstarfinu, að hún var kona óvenjulega vel
máli farin. Hlóðust að henni umfangsmikil og margþætt
íélagsstörf, svo að verksvið hennar fór sívíkkandi fram
að dánardægri.
Hún stóð framarlega í samtökum kvenna innan Lib-
eral-stjórnmálaflokksins og tók einnig mikinn þátt í starfi
félags háskólakvenna í Manitoba; átti um skeið sæti í
stjórn þess félagsskapar og var formaður eins fræðslu-
hrings hans. Hún var einnig tvö kjörtímabil (1938-1939)
forseti hins útbreidda og áhrifamikla kvenfélaga-sam-
bands, Women’s Canadian Club.
Merkast og áhrifarikast varð þó starf hennar í þágu
atvinnu — og fræðslumála. Hún var starfandi í þeim
félagsskap í Winnipegborg, er lagði sérstaka stund á
þjóðfélagsfræði (Social Science Group) og átti um hríð
sæti í framkvæmdanefnd fulltrúaráðs framfærslu — og
iíknarfélaga borgarinnar (Central Council of Social
Agencies). Árið 1934 var hún ein af tveim konum í Win-