Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1944, Qupperneq 81
ALMANAK 1944
81
Mjög snemma fór Jóhannes einnig að fást við sjó-
mennsku, og formaður varð hann kornungur bæði í
Grenivík og Hrísey. 'Var hann síðan formaður að stað-
aldri öll árin þangað til hann fluttist af landi burt. Að
dæma af vinnubrögðum hans síðan kom hingað vestur,
þarf eigi að efa, að hann hafi verið bæði hinn öruggasti
og kappsamasti sjósóknari.
Skólaganga Jóhannesar var af harla skornum
skammti, eins og títt var um íslenzka sveitapilta á þeirri
tíð. Fyrstu fræðslu sinnar, lestrarkennslu, naut hann hjá
Þorkel Þorkellssyni, þeim, er orti sálminn alkunna: “Eg
fell í auðmýkt flatur niður”; hefir það nám sýnilega geng-
ið greitt, því að lesið hafði Jóhannes alt Nýja Testament-
ið er hann var fimm ára gamall. Seinna var hann tvo
vetur við nám hjá séra Tómasi Björnssyni, presti á
Hvanneyri og síðar að Barði í Fljótum. Einnig stundaði
hann part úr vetri nám á Akureyri hjá Guðmundi Hjalta-
syni, og ber hann þeim sérstæða frömuði íslenzkrar al-
þýðumentunar hið besta söguna.
En takmarkaða skólagöngu sína hefir Jóhannes, að
dæmi hinna ágætustu alþýðumanna íslenzkra fyr og síðar,
bætt sér upp með víðtækum lestri góðra og nytsamra
bóka. Hann er handgenginn íslenzkum fornbókmennt-
um, eigi síður en nýrri bókmenntum þjóðar vorrar, og
verður oft til þeirra vitnað bæði í samtölum og opin-
berum ræðum, því að hann er maður ágætlega minnug-
ur. Þá hafa honum verið sérstaklega að skapi rit um
heimspekileg efni og þjóðfélagsmál, og er hann víðlesinn
í þeim fræðum. Einkum hefir samvinnuhreyfingin verið
honum hugstætt umhugsunarefni um dagana, enda er
hann þaulkunnugur sögu hennar og trúr málsvari hug-
sjóna hennar. Var hann seinast er fundum okkar bar
saman (síðastliðið sumar) að lesa nýútkomna sögu sam-
vinnuhreyfingarinnar í Canada, og þótti honum sem þar
væri eigi alstaðar ritað af nægilegum skilningi eða þekk-